26.2.2009 | 10:06
Ömmur og afar sem breytast....
...í dreka í myrkum skógi,
er bara ávísun á ræs fyrir
klukkan 9 á frídegi húsfreyju.
Átta ára djásnið er í vetrarfríi,
og síðan vatt "skrímsla- og nornadagurinn"
í gær, sig eitthvað inn í drauma hennar.
Hafði þó Svöluna með sér í martröð
þessari, en þekkti enga ömmuna eða
afann.
Baunaeldamennska húsfreyju lukkaðist
prýðilega vel, þrátt fyrir að hún stressaði
sig lítið sem ekki neitt yfir pottunum.
Hefur aldrei skilið hrifningu þessa yfir
"mauksoðnum baunum", sjálf...enda nægja
henni 3-4 matskeiðar af graut þessum,
og þarf þá ekki meira af honum fram á næsta sprengidag.
Saltkjötið, rófurnar og kartöflurnar er svo allt annar handleggur,
enda bara um lostæti að ræða. NAMM!
En bóndi hennar hringdi af og til áhyggjufullur,
og athugaði hvernig "baununum" liði.
"Eins og óhreinum bleium í bleyti" var ekki
vinsælt svar, né heldur "krauma lukkulegar með alls
konar gumsi".
En þegar bóndi var búinn að setja húsfreyju í
þriðju gráðu yfirheyrslu um "gumsið"...laukur,
2 saltkjötsbitar og ein skrælluð kartafla
var undirstaðan í því, var eins og honum létti
að miklum mun.
Heilsufar og líðan húsfreyju var hins vegar
ekki rætt!
Jamm, og "baunamaukið" er uppétið, svo
líklega er húsfreyja bara efnilegur "baunakokkur".
Stinga upp á því við bónda að hún sjóði "grænt baunamuk"
næsta Sprengidag, að ári.
Gerir áreiðanlega stormandi lukku.
Nú svo á Öskudagur eina "18 veðurfarslega bræður"
samkvæmt þjóðtrúnni, svo húsfreyja sér fram
á myljandi flottar fjöruferðir með 8 ára djásninu
næstu 18 daga.
Fórum eina í gær í himneskri blíðu og náttúrufegurð.
Fyrir norðan mun geysa stórhríð, eftir því sem húsfreyja sá
í fréttum í gær...í 18 daga!
Það er eins og frændur hennar fyrir norðan sögðu oft:
"Norðurlandið er á mörkum hins byggilega heims.....og
svo fer það stundum langt yfir mörkin á veturna...
....til hins verra".
En þá var nú útidyrahurðin á húsum þeirra orðin
smá "þakgluggi" upp undir rjáfri, og svo fóru þeir á
sunnudögum með familíuna í nestisferð í "skrúðgarðinn"
og tylltu sér á "ljósastaurana" sem maraði í, undir snjónum
og snæddu nestið.
En málgagnið og martraðarlaus blundur næst.
Góðar stundir.
Athugasemdir
Ég eldaði ekki saltkjötssúpu gumsið þetta árið. Man alveg í fyrra þegar ég næstum datt ofan í pottinn og vaknaði daginn eftir og sá ekki út úr augum og leit út eins og Barbapabbi. Mér finnst þetta nefninlega svo gott
Eigðu góða helgi
Sigrún Óskars, 27.2.2009 kl. 23:06
Ó, já og minn maður datt ofan í "gumsið" nú eins og endanær, og er "eitthvað hálfslappur" í maga síðan. En ég lét duga kjöt, rófur og kartöflur og er bara góð.
En njóttu svo helgarinnar, vinkona...það er aldeilis veðrið til þess.
Sigríður Sigurðardóttir, 28.2.2009 kl. 12:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.