Óvissuferðir hjá SAS?.... og andvökur.

post822bed  Ætli þetta sé nýjasta nýtt

  hjá SAS....skella ferðalöngum

  í óforvendis "óvissuferð", í

  heldur lengra og "dýrara" ferðalag

  en til stóð í upphafi...og rukka svo

  bara mismuninn á áfangastaðDevil?

  Nú og máske er þetta liður í sparnaði hjá SAS,

  að ráða til vinnu fólk sem aldrei veit

  hvert það er að fara.....hinir sem vita það

  hljóta þá að hafa verið að fá "extra bónusa" fyrir "viskuna"

  hjá því félaginuLoL.

  Nú eða þá að þetta sé sjúkdómur,

  eða jafnvel faraldur sem orsakar svona

  óvissu og minnisleysi hjá fólki í ábyrgðarstöðuErrm.

  Og hér hélt húsfreyja, að það væri

  bara "ástsæll seðlabankastjóri" vor,

  sem ekki vissi hvort hann væri að

  "koma eða fara", væri uppsegjanlegur

  eða ekki óuppsegjanlegur,

  hvort hann væri í pólitík eða ekki í pólitík,

  hvort hann væri vinsæll eða óvinsællPinch!

  Svo er þetta ef til vill bara að "ganga" víða lönd,

  og máski bráðsmitandi líkaW00t.

  JEMINN!

  -----   ----   ------ ---- ----- ---

  En þetta var nú meinleg grínútrás hjá húsfreyju,

  enda húsfreyja í meinlegum gír í dag.

  En hún vonar svo sannarlega að flugstjóri þessi hafi ekki verið

  alvarlega veikur hjá SAS.  Margir slæmir sjúkdómar sem geta

  orsakað brátt ruglástand hjá fólki, eins og blóðtappar

  og heilablæðingar, og er ekki gerandi grín að slíku.

  --- --- --- ---- --- ---

  Móðir húsfreyju á nú í vök að sækja á

  sínum heimavelli, forstofuherbergi sínu

  austan fjallsFrown

  Þar hvílir hún lúin bein næturlangt með

  Svöluna sér við hlið.

  Stundum bætast Sigginn og Vigrinn við

  og svo tíkin hrjótandi undir rúmiHalo.

  Reynir þá múttan að finna sér næturstað

  í öðrum auðum rúmum þá fer að þrengja að.

  Hefur nú bæst heldur við "svefnbúskapinn"

  hjá múttu, því kattarræfill, svartur og hvítur er Álfur

  nefnist, er farinn að hringa sig til fóta múttu.

  Sér húsfreyja í hendi sér, að vilji mútta hennar

  halda sínu forstofusvefnherbergi, verði hún að

  færa múttu sinni forláta "hengirúm" með digrum

  kaðalstiga upp á 2 metraLoL.

  Negla hengirúmið upp undir loft í forstofuherberginu,

  og festa kaðalstigann við.

  Þar í "efri hæðum" geti svo múttan unað sér glöð,

  ánægð og "steinsofandi" í friði og ró allar nætur....

  en aðeins EF hún rúllar kaðalstiganum upp á

  eftir sér, þá hún er "uppstiginn"Devil!

  Gleymi hún því er næsta víst að múttan hrökkvi

  upp við illan draum, með Svöluna, Siggann, Vigrann

  og köttinn í einu vöðli sér við hlið í hengirúminu,

  og tíkina ofan á kvið sérPinch.....um miðja nótt.

  Og þá er úti um svefn múttunnar þá nóttina...

  og verður hún að láta sér nægja að dudda sér við krossgátur

  og bloggskrif...ef hún þá kemst niður úr

  "loftbælinu"LoL!

  Húsfreyja á annars ágætis tjald...getur lánað

  múttu sinni það...má altént tjalda því úti á bletti

  í VORGrinCool!

  Góðar stundir og ljúfan nætursvefn í nótt.

 

 


mbl.is Flugstjóri vissi ekki hvert hann var að fara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband