13.1.2009 | 08:52
Þumlaslitgigtarfræðslu..
..til allra ungmenna STRAX!
Þetta er ótrúlegt.
Þegar sms-skilaðboðssendingar er
orðið nánast það eina sem
unga fólkið gerir á daginn inni á
heimilum sínum og ekki síst, á milli
tíma í skólum sínum.
Hvaða gæði lífs eru þetta?
Hvað er orðið af heita kakóinu,
rúnstykkjum með osti, eldheitum
umræðum um erfiða dönskukennarann,
spjallinu um ruglið í pólitíkusum, um
hvaða bíómynd ert vert að horfa á
í kvikmyndahúsum, hvort þessi eða hin
skvísan sé búin að næla í hann Valda,
hvort ekki sé hægt að plata náttúrufræðikennarann
á Kökuhúsið í næsta tíma?
Nú eða fjörugri spilamennsku í Kana, Bridge eða Vist?
Sms- skilaboð máske búin að yfirtaka samskipti
ungs fólks, og það að horfast í augu og
ræða beint við viðkomandi orðið úrelt?
Það að gera eitthvað "saman" með félögunum
í frímínútum og matartímum í skólum liðin
tíð....nema auðvitað að sitja hlið við hlið
með andlitið á grúfu ofan í "gemsahaldandi"
hendur, með auma "gatslitna" þumla, að
senda sem flest sms-skilaboð á nánast
óskiljanlegu tungumáli?
Gjeggt!
Sorgleg þróun að mati húsfreyju.
Unga fólkið okkar sem er svo klárt og skemmtilegt,
þegar það gefur sér tíma til að spjalla, brosa og
horfa í augun á viðmælanda, að tapa dýrmætum
samskiptahæfileikum vegna sms!
Fyrir utan þrútna og slitna þumla, ásamt
strengjum í herðum og hálsi og pírðum
þreyttum augum sem eru leiðinlegir fylgikvillar
sms-skilaboða í massavís.
Ja, ekki er það gæfulegt.
En húsfreyja hefur það fínt.
Engin slitgigt að hrjá hana í þumlum.
Var í Noregi í draumum sínum í nótt.
Og Olsen-bræður sungu undir:
"Fly on the wings of love, fly baby fly....
.....AND REACH FOR THE SKY".
Snjór í Noregi samkvæmt draumi húsfreyju,
en blíðuveður, þó allt hafi verið frosið og kalt.
Sjö ára djásnið svefndrukkið og lengi að vakna
í skólann.
En hafðist með "bullvísum" húsfreyju um
"köttinn í hvítum sokkum,
sem hefur of lítið af "kisumatarkokkum",
á ekkert af síðum lokkum
og því síður gömlum rokkum".
Einar besti vinur mætti svo, og hlífði
djásninu þar með við fleiri "hljóðhimnusprengjandi"
vísum frá húsfreyju.
Þau röltu svo út í morgunkuldann og myrkrið,
og beina leið í skólann
En húsfreyja er á leiðinni undir hlýja sæng
sína, með málgagnið sem henni kannski tekst að
lesa tvö orð í, áður en "Ólafur" Lokbrá vísiterar
hana með fleiri drauma....máske hún skelli sér
til Ástralíu í þetta sinn.
Góðar stundir...zzzzzzzzzz.
Sendi 14.528 skilaboð á mánuði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ef þú skrifar 10 skilaboð á einum klukkutíma, sinnum 8 klukkutímar, og sendir á 20 manna hóp fólks í einu er útkoman, 1600 á einum degi.
Og ef það er margfaldað með 6 dagar þá færðu 9600.
Höfum einnig í huga að skilaboð þurfa ekki að vera lengri en eitt "já" eða "nei"
Mákona mín 14 ára gömul sendi 10.000, á einni viku þegar hún var veik.
Matthildur Jóhannsdóttir, 13.1.2009 kl. 10:18
Reyndar kemur fram í fréttinni, Matthildur, að stúlkan hafi að meðaltali notað aðra hverja mínútu sem hún vakti í sms-skilaboðin. Þannig að líklega hefur hún sent eitthvað meira en eingöngu "já eða nei". En eigi að síður, er ég sammála um að GSM-símar séu ágætis öryggistæki, og beri að nota í veikindum og neyðartilvikum óspart. Held bara að margir noti sms-kilaboðin óþarflega mikið, á kostnað góðra mannlegrasamskipta.
En þakka þér innlitið.
Sigríður Sigurðardóttir, 13.1.2009 kl. 13:35
Já Sigga breittir tímar .....en þetta er náttúrulega bara eins dæmi sem betur fer......nóg er nú samt.
Solla Guðjóns, 14.1.2009 kl. 16:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.