Redda sér!

schoolchildren  Mikill námsmaður þetta!

  Ekki ætlað sér að missa af

  skólanum þennan dag....

  eða skólamorgunmatnumGrin!

  Sjö ára djásninu er nokk sama

  um skólamatinn, enda matgrönn með afbrigðum.

  En félagsskapurinn og námið er bara stuð,

  þó ekki hafi henni fundist gaman í smíði.

  En seint færi hún samt af stað upp á eigin

  spítur, að aka bíl foreldranna í skólann.

  Enda eins gott!

  Húsfreyja fengi slag, ef djásnið reyndi slíkt,

  og bóndi hennar yrði að fá áfallahjálp...Devil.

  Húsfreyja hefur tvisvar nuggað stuðarann á

  heimilisbifreiðinni og eitt sinn rifnaði silsi af,

  óskemmdur þó.

  Bóndi "hjúkraði" bíl til heilsu aftur í öll þrju

  skiptin, stumraði yfir honum og annaðist sem ungabarn.

  Húsfreyja fékk "enga samúð", þó henni hefði orðið um

  að valda skemmdum á bíl sínum.

  "Hvað varstu að hugsa, kona" eiturhvasst, var það

  "hlýlegasta" sem bóndi lét frá sér fara við hanaW00t.

  Góðar stundir og farið varlega í umferðinni.

 


mbl.is Ók sjálfur í skólann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband