12.12.2008 | 15:33
Papa don't preach....
...söng hin ljóshærða,
söngfagra en "lostafulla"
Madonna hér um árið.
Nú er sú ljóshærða búin
að "æsa upp" katólskan
kardinála í Chile, blessaðan
öðlinginnn hann Jorge Medina.
Samkvæmt viðkvæmum kardinála þessum,
er Madonna búin að móðga "sjálfan" Guð
almáttugan.
Hún virðist greinilega hafa fundið "löngum týnt"
heimilisfang almættisins, og drifið sig á
stúfana að móðga þann æðsta all svaðalega.
Og svo móðgaður er Guð, samkvæmt
Medina, að allir íbúar Chile
finna fyrir "mergjaðri" spennu, þá Madonnan
mætir í þeirra heimaland að raula nokkur lög.
Fá þá sjálfsagt allir Chilebúar í magann af stressi,
með tilheyrandi fretum, "steinsmugu" og uppsölum.
Ekki vært í messu hjá hinum ljúfa Medina, þar með,
og messugestir hans flykkjast þá á tónleika
Madonnunnar í staðinn til að "kvarta" fyrir hönd Guðs.
Ja, sei sei, mikið mæðir á hinum góða Medina.
Ekki nóg að aldavinur hans og "góðmenni", Pinochet
einræðisherrann, sem talinn er hafa "auðveldað"
3000 manns í Chile inngöngu í "himnaríki" hinna katólsku,
sé farinn yfir móðuna miklu, þá þarf hann nú að
standa í ströggli við almættið um "lostakvendið"
hana Madonnu.
Almættið vill sjálfsagt fá að vita, því þvílíku sóðakvendi
og "argabletti á mannkyninu"
sé hleypt inn í hið há rómversk-katólska Chile.
Nei! Ekkert grín þetta, að vera kardináli í Chile.
En nú væri lag fyrir Ernie Chambers hin
skapvitra öldungaþingmann þeirra
Nebraskamanna í henni Ameríku, er
reyndi að lögsækja almættið nú á dögunum,
að koma að máli við Madonnu, og fá hjá henni
"addressuna" hjá Guði.
Því hann varð fyrir því bévítans óláni
að máli hans gegn Guði var vísað frá,
þar sem hann "fann ekki" heimilisfangið
hjá þeim í æðsta.
Góðar stundir.
Madonna sökuð um að móðga guð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Er guð ekki skrifað með litlum staf... það er jú bara starfsheiti ;)
DoctorE (IP-tala skráð) 12.12.2008 kl. 15:42
Nah, doctor, "starfsheiti" almættisins mun vera "skapari alheims" samkvæmt öllum helstu trúarritum heims!
Þakka ykkur innlitið, báðum tveim.
Sigríður Sigurðardóttir, 12.12.2008 kl. 23:51
Brjálað að gera hjá Guði eilíflega, get ég ímyndað mér, Galdrar. Skapa nýja og betri heima, sólir, svarthol, plánetur og tungl. Þess á milli að reyna að koma vitinu fyrir Jarðarbúa í kreppu, reyna að fá þá til að "kassera" trúarbrögðum, reyna að fá ríkisstjórnir til að "sparka" öllum "Döbbum" úr ábyrgðarstöðum, reyna að kenna öllum Jarðarbörnum kærleik og virðingu í garð náungans....ræðst sjálfsagt aldrei á garðinn þar sem hann er lægstur, Guð almáttugur.
Sigríður Sigurðardóttir, 13.12.2008 kl. 00:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.