1.12.2008 | 08:25
Vinir í vestrinu.
Víða eiga Frónbúar vini.
Kemur æ betur í ljós.
Og á nýhafinni aðventu jóla,
og degi fullveldis, fáum við
fregnir úr vesturheimi.
Gerri McDonald forseti INL,
Þjóðræknisfélags Íslendinga hefur
hrundið af stað söfnun fyrir góðgerðafélögin okkar.
Gott mál það, því víða kreppir skóinn að
þá afborganir af lánum hafa tvöfaldast,
ef ekki þrefaldast í kreppunni.
Lausn stjórnvalda á geigvænlegum vanda
heimilanna?
Jú, frysta lánin af húseignum í nokkra mánuði, og gefa svo
Frónbúum massívt taugaáfall, þegar farið er að borga
af þeim aftur, með vertryggðum vöxtum og vaxtavöxtum,
og síhækkandi höfuðstól.
Telja stjórnvöld þá líklegt að laun Frónbúa
muni "hækka" einhver reiðinnar bísn,
í kreppunni alræmdu.......
rétt á meðan frystingu lána stendur?
Ætlar stjórnin að "sjá um" að launin
hækki, svo hægt verði að borga af lánunum?
Að "framboð" á vellaunaðri vinnu
verði yfirdrifið....í kreppunni?
Eða liggja stjörnvöld bara á bæn, og vona að
hver einasti lánagreiðandi vinni "STÓRT"
í LOTTÓ eða happdrættum, svo hægt sé
að reyta af þeim fyrir lánunum....allavega
í nokkra mánuði, áður en tauga-og geðdeildar
allar verða fullar, og röðin fyrir framan
Mæðrastyrksnefnd nær alla leið upp í Mosó?
Nei, bara svona smá pæling á Fullveldisdeginum,
1. desember.
En yndislegt að eiga vini í vestrinu.
Söfnun í Vesturheimi til styrktar Íslendingum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.