13.11.2008 | 21:54
Og englarnir vaka.....
...yfir húsfreyju.
Varla fyrr búin að setja niður
smá spjall á bloggið um Almættið, að það
smellti frímerki á eitt lítið "letters-bréf"
til húsfreyju.
Húsfreyja búin að vinna 15.000 króna inneign
á korti í Blómavali, Húsasmiðjunni eða Eggi
fyrir jólagjöfum.
Yndislegt.
Húsfreyja þar að auki í fríi á morgun, svo
nú getur hún aldeilis farið að redda jólagjafamálunum.
Glæsilegt það.
Svo glæsilegt að húsfreyju er nokk sama þó
Skjárinn hafi tekið af henni hinn illskeytta og
harðsnúna House í kvöld.....þó lækniskvikindið
sé með skemmtilegri karakterum er sést hafa
á sjónvarpsskjánum.
Situr bara og saumar út í staðinn og plottar
hin mergjuðustu jólagjafakaup á morgun
með bros á vör.
"Plankastrekkjari" handa bónda,
"rússaloðhúfa" handa systur í Þorlákshöfn,
"skrúfusett" handa múttu, svo hún geti
lagfært "lausar og úrdottnar" skrúfur í
höfði dætranna",
"hringprjóna og garn" handa systurdóttur
og "afstress-bolta" í "glöðum" litum
handa systur í Eyjum.
Nei, bara smá grín.
Finnur eitthvað ægilega sætt og lekkert
handa sinni undursamlegu fjölskyldu, húsfreyja.
Ekki spurning.
Húsfreyja ætlar að biðja Almættið að "redda"
þessum "leiðindum" í fjármálaheiminum hér
uppi á litla Fróni, og setja heila "nefnd" af
fjármálaenglum í málið.
Sjá svo bara hvort Guð kippi þessu ekki í
liðinn fyrir Jól.......alveg væri honum
trúandi til þess.
Góða nótt og góðar stundir.
Athugasemdir
sko mína - jólagjöfunum reddað til lukku með vinninginn. Mér finnst þetta líka góðar hugmyndir hjá þér.
kveðjur til þín og vona að Almættið hlusti áfram á þig.
Sigrún Óskars, 14.11.2008 kl. 00:13
rússaloðhúfa....humm því ekki ,mín ætlar að fara að labba.leggja bílnum.og leggjast sjálf í jólagjafaföndur....snúrustör handa múttu..of dýrt ,hún fær böndin.auka tíma handa systur í eyjum..ekki til.kósikvöld handa Hennslu..og heimari...þau myndu bara rífast um snakkið.....hætta að slást dag handa bræðunum..nei hugsa málið betur.
Árný Sigurðardóttir, 14.11.2008 kl. 12:52
Þakka þér Sigrún mín, þetta er góð búbót á tímum óðaverðbólgu. Jamm, jólagjafahugmyndirnar voru kannski ekki sem verstar, sýnist systir orðin skotin í "rússahúfunni". Almættið hlustar á okkur ÖLL.
Alveg vissi ég þetta með húfuna, systir. Ekki láta karakkana komast í "snúruböndin"....þá verða þau orðin sippubönd, kúrekasnörur eða sjóræningjaskipsbönd, og mútta jafn snúrulaus þegar staurarnir birtast.
En við gætum kannski slegið saman fyrir "dauðum aukatíma" handa systur í Eyjum....er alltaf að detta inn einn og einn "dauður" hjá mér, þegar nýrnagrjótið er að hlassa sér niður.
Sigríður Sigurðardóttir, 14.11.2008 kl. 14:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.