8.11.2008 | 01:13
Góður Stefán Karl...
...og nú er íþróttaálfurinn eini og
sanni, Magnús Sheving búinn að
landa hlutverki sem eðal-illmenni
númer eitt hjá Jackie Chan.
Hér á heimili húsfreyju eru hetjur
Latabæjar, hvort sem þær eru góðar eða
slæmar í miklum hávegum hafðar.
Sjö ára djásnið jafnar þeim Stefáni Karli
og Magnúsi jafnvel við Jólasveininn og
Leppalúða.
Aðrar eins hetjur og bófar hafa aldrei fangað
hug þeirrar sjö ára eins og þeir tveir.
Músíkina í þáttunum kann djásnið utan að,
spilar hana með jöfnu millibili alveg í botni
....tuttugu upp, tuttugu niður....hátt upp í
himinninn, þar bíður geimurinn...osfr.
Því miður kann húsfreyja einnig ALLA
söngtexta Latarbæjar utan að, svo
illilega að hún hefur engan frið á
næturnar fyrir músík þessari, og hafa
ALLIR hennar draumar síðustu 3 árin
verið við "undirspil"´íþróttaálfsins, Glanna
Glæps og Sollu stirðu.
Gott ef hún brestur ekki á í miðju
Latarbæjarlagi á ferðum sínum um
bæinn líka....DÆS!
Jamm, Latabæjarheilabilun á háu stigi að
hrjá húsfreyju, og virðist engan enda ætla að taka.
Reyndar "Mamma Mia" og ABBA aðeins að koma geðheilsu
húsfreyju til bjargar um þessar mundir, en ekki mikið.
Næsta víst að húsfreyja verði einhver "gjeggaðasti
Latarbæjar-karíokísöngvari" eldri borgara, þá hún
kemst á aldur, og mun verða send í útlegð út
í Hrísey, svo hún geti sungið spangólandi
hundum í sóttkví til skemmtunar.
Jaso, ekki amaleg framtíðarsýn það....DÆS!
En altént brilliant flott hjá Stefáni Karli sem
Trölla....húsfreyja liggur á bæn, og vonar að Stefán
syngi ekki "eitt einasta" lag í bíómyndinni!
Góða nótt og góðar stundir.
Kaffispjall með Trölla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Já, hún litla frænka mín er nokkuð frábær! Guð sé lof að Marinó er ekki farinn að fíla latabæ... ég á þegar í basli við allar þessar mörgæsir hjá drengnum!
Kristín Henný Moritz, 9.11.2008 kl. 02:21
Oooooo þú átt alla Latarbæjarheilabilunina eftir....en takk fyrir kommentið, ég er búin að fá góða hugmynd að "jólagjöf" hana litla Marinó....verður svona DVD......eitthvað um ægilegt letilíf á fólki í einhverju bæjarfélagi......!
Sigríður Sigurðardóttir, 9.11.2008 kl. 11:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.