26.10.2008 | 13:45
Góðir draumar.
Húsfreyja var í góðum gír í
Draumalandinu í nótt.
Var stödd í verslunarkjarna
sem var að hluta til út undir beru
lofti, en að hluta til innandyra.
Með henni "draumkona" hennar.
Þær ganga inn í fína verslun, þar
sem margar fallegar peysur eru
í glugga.
Húsfreyja telur fatnaðinn heldur
dýran fyrir sig, en draumkona
grípur buxnadragt af slá, gulbrúna
að lit og segir: "Hér hef ég eitthvað
alveg sniðið á þig".
Og merkilegt nokk, hárrétt hjá
henni, dragtin smellpassaði á
húsfreyju og fór vel.
Húsfreyja keypti dragtina og
grænbláan bol með gylltum og fjólubláum
blómum á 32.333 krónur....og fékk
að ganga út í nýju fötunum.
Úti við voru sölubásar, draumkona
fór með húsfreyju að bás þar
sem kona var að selja ýmislegt
smálegt, en var einnig búin að
leggja stór mjó spil í stjörnu á
borð. Draumkona sagði mér að
velja eitt af spilunum í stjörnunni,
og snúa upp. Húsfreyja valdi
spil efst til hægri af 3 spilum í
miðju stjörnunnar, og fékk tígulásinn.
Vaknaði svo húsfreyja.
Tígulás táknar velgengni í viðskiptum,
brún föt metorð eða ferðalög og blá
lánsemi.
Ekki slæmt það.
Langt síðan að húsfreyja fór að taka mark
á sínum draumum, enda hafa þeir nánast
allir ræst, þó ekki hafi húsfreyja alltaf vit til
að ráða "rétt".
Og stundum þykir henni erfitt að fá "aðvaranir"
um veikindi eða jafnvel andlát í draumi, en er
samt alltaf þakklát. Því að vera búin undir
slíkt fyrirfram, hjálpar alltaf húsfreyju að
halda ró sinni og andlegu jafnvægi.
En sviðakaup næst, mútta er á leið í mat
og gistingu.
Góðar stundir.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.