21.10.2008 | 18:18
Hvað skal segja...
...þá þrengir að heimilum og
aldraðir verða að fara aftur út á
vinnumarkað sjötugir eftir að
hafa misst allan sinn sparnað
í óráðsíu frjálshyggjubanka
og auðjöfrakreppu?
Tómas sagði það betur en
húsfreyja getur:
-----
Renndi ég þá augum
um aldaslóð:
Sá ég þreytta þjóð,
sem með þöglum huga
byrði sína bar
og í beiskri kvöl
átti einskis völ
- annars en duga.
Vel máttu því vita
hafi víðsjál björg
ferleg og mörg,
þér í fang hlaðist
að stærra leit ég hafrót
það er strönd mín braut,
og þyngri þraut
hefur þjóð mín staðist.
------
Slík eru mín boð-
Kveð ég börn mín öll-
Megi fólk og fjöll
hylla fánann bjarta,
þann er íturhreinn
yfir aldaslóð
leiði lands míns þjóð
heim til lands míns hjarta.
Tómas Guðmunddson (Ávarp fjallkonunnar 1950)
Tómas hitti iðulega naglann á höfuðið,
og mörg hans ljóða tímalaus.
Húsfreyja verið á þönum í dag á sinni
góðu deild.
Öldungar allir í nokkuð góðum gír, enginn
alvarlega veikur.
Aðeins einn gamall maður mikið niðri
fyrir, sem sagðist vera "ásóttur" af
álfum nætulangt. Var aðal umkvörtunarefnið,
það að fá ekki svefnfrið fyrir álfum
þessum, og yrði hann að spjalla við
þá og halda þeim selskap á næturnar.
Húsfreyja á því miður engin "álfameðul"
í fórum sínum, er svæft gætu álfa þessa,
og þó hún ætti, yrði henni erfitt um vik
að finna "ásóknarliðið".
Hefur ekki séð einn einasta álf síðan
hún var 5 ára gömul, er hún hoppaði
og skoppaði um með álfabörnum í leik
allan liðlangan daginn.
Þóttu foreldrum og afa sögur hennar
af ævintýrum sínum og leikfélaga
bera merki um fjörugt ímyndunarafl
og mikið hugmyndaflug.
"Ertu nú alveg viss" var spurning sem
5 ára skottan fékk daglega, og svo
var "brosað út í annað".
Skottunni fannst merkilegt hversu
"viss" hún þurfti ætíð að vera í frásögnum
við fullorðna fólkið, en var afskaplega
ánægð með hversu "brosmilt" fólkið hennar var.
En um 6 ára hurfu henni álfarnir, vinir hennar allir,
og engan hefur hún séð síðan.
Og sé nú mætt heil hersveit álfa í partýstuði
til gamla hennar á deildinni, er úr vöndu
að ráða.
Því engir heyrir þá né sér nema gamli,
og er honum líkt farið og húsfreyju
forðum daga: "Ertu nú alveg VISS, Jón minn"?
Og svo: !
Athugasemdir
Solla Guðjóns, 22.10.2008 kl. 22:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.