20.10.2008 | 16:03
Andfíkill!
Húsfreyja er í hópi þeirra
einstaklinga, sem kolfellur
fyrir öllum neikvæðum áróðri
og tekur hann afskaplega nærri sér.
Man en "hryllingsmyndirnar" sem
sýndar voru af tjörusvörtum
lungum "uppafhrokkinna" reykingamanna,
í Barnaskólanum í Eyjum.
Fékk húsfreyja þá 11 ára stelpuskott,
hroðalegar martraðir vikum saman, þar
sem "tjörusvört lugnaskrímsli" gengu
berserksgang í miðbæ Eyjamanna, og
"smituðu" alla er þeir snertu af "svörtum
blettum". Man húsfreyja enn eftir að
hafa vaknað öskrandi af angist nokkra
morgna og hafa hlaupið fram á bað í
hendingskasti að þvo sér vel og vendilega
um hendurnar.
Húsfreyja reykir ekki, hefur aldrei gert og
getur nánast lofað að slíkt muni hún aldrei
gera.
Andúð hennar á tjörusvörtum lugnaskrímslum
hefur aldrei rénað, og því síður óttinn við
að "smitast" af fíkninni.
Og lyktin er svona fremur úldin og vond að
hennar mati, af reykingarfólki.
En svo er það ekki húsfreyju að dæma, hvað
fólk velur að upplifa í lífinu. Og velji það reykingar
er það því frjálst, og abbast ekkert upp á húsfreyju
ef reykt er utandyra.
Á nokkra ágæta vini sem reykja, og hennar bóndi
reykti, en allir hafa verið tillitsamir við húsfreyju
og tekið sínar reykingar út undir bert loft......
reyndar bara fóstursonur sem svældi og
púaði innandyra þá hann bjó heimili húsfreyju.
Enda voru bóndi og húsfreyja "marga mánuði" að
lofta og ræsta út herbergi hans eftir að hann
flutti.
Helv..... stybban virtist eiga eigið líf, og hékk
í andrúmsloftinu, veggjum, gluggum, dyrum og
jafnvel gólfefni svo súrnaði í augum hvert
sinn er gengið var inn í herbergið.
Hvernig sem húsfreyja þreif, alltaf náði stenkurinn
sér upp. Loksins málaði bóndi herbergið, og það
dugði.
Þá hafinn var "áróður" gegn drykkju alkóhóls og
neyslu vímuefna í menntaskóla húsfreyju, fór
allt á sama veg.
Húsfeyja var miður sín mánuðum og árum saman
yfir vanræktum börnum alkóhólista, misnotuðum
unglingum í eiturlyfjaneyslu, bjargarlausu útigangsfólki
góðu fólki helteknu af brennivíni, og/eða eiturlyfjum,
vonleysi, glötuðum tækifærum og týndu lífi.
Hana dreymdi margar nætur að óþverralið væri
búið að blanda brennivíni eða dópi í vatnsból
Frónbúa, eldar brunnu, fólk vafraði um útælt,
borg og bæir rústir einar.
Vaknaði kófsveitt og með hjartslátt.
Húsfreyja kann ekki að drekka sig rænulausa,
smakkar rauðvín eða hvítvín með mat, og
fær sér eitt Tópasskot þá hún er á djamminu.
Heldur ætíð fullri "andlegri getu" og skýrri hugsun,
þó hún fái sér í glas.
Er ofboðslega meðvituð um "veiklaða genið" í
ættinni, sem hefur leitt margan manninn í
ógöngur með vín eða eiturlyf nú síðustu ár.
Nú heyrir húsfreyja í huga sér rök "hinna"
sem "kunna" að drekka almennilega:
"Þú kannt bara ekki að slaka á, kona".
En það kann húsfreyja einmitt einna best.
Hún er allra manna hressust og glöðust
þá hún er úti að skemmta sér.
Dansar, syngur, spjallar og hlær af hjartans lyst,
og er í banastuði......en nánast edrú.
Að slaka á og skemmta sér er nefnilega bara
meðvitað hugarástand, sem auðvelt er að
koma sér í með ásetningi og innri gleði.
Brennivín og vímuefni eru algjörlega óþörf.
Og þó þau losi um hömlur og talanda til
að byrja með, þá slæva þau síðan deyfa
gleðina. Og fólk fellur í þá gryfju að
drekka meira og meira, eða dópa meira
til að ná stuðinu aftur upp, og liggur svo
brennivínsdautt undir borði eða ælandi
fárveikt af vímuefnum í lok djamms.
Hvar er þá slökunin og fjörið?
Jamm, en húsfreyja er andfíkill, og er þess
fullmeðvituð.
Hefur rætt þessi mál við marga af sínum
skjólstæðingum, og þeir er hafa lent í
hremmingum alkóhólisma og eiturlyfja
telja hana oft fordómafulla á brennivín og
vímuefni.
Það er hún, ekki spurning, og viðurkennir
fúslega.
Vildi geta breytt víni í vatn á skemmtistöðum
svona ala Jesú frá Nasaret, en bara með
öfugum formerkjum.
Og breyta eiturlyfjum öllum í þjóðfélaginu
með hugarorkunni einni saman, í "vítamín".
Svo mörg voru þau orð.
Góðar stundir.
Ýtir andróðurinn undir tóbaksfíkn? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Góður pistill mín kæra
Heiður Helgadóttir, 20.10.2008 kl. 20:37
Já ,já skál.
stina (IP-tala skráð) 21.10.2008 kl. 18:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.