21.9.2008 | 17:21
Hér uppi á litla Fróni heitir...
...þessi grínsaga "Þegar Villi varð að konu"
(þ.e. Hönnu Birnu).
Það er ein mergjaðast gamansaga í íslenskri
pólitík, fyrr og síðar og húsfreyja
er en að reyna að fá botn í hvernig
borgarstjóri vor hefur "þróast" í þremur
stökkbreytingum í konu.
Ekki verið minna umstang og vesen í
kringum borgarstjóra síðustu mánuði,
en á Walesbúum með "hæðirnar" sínar...
nei, "fjöllin" sín....nei...."hæðirnar".....eða
hæðótt fjöllin.
Hér hefur aðal málið að mati húsfreyju
verið að klúðra nógu af "stórmálum" á
borgarstjórneska REI-vísu, flytja flugvöllinn
tvist og bast, út á rúmsjó eða upp til fjalla
eða gleyma honum alveg, og hafa fanga
og útigangsmenn sem húsnæðislausasta
í höfuðborginni, á meðan "alfriðuð" gömul
hús eru látin brenna til grunna.
Borgin í góðum málum?
Ekki spurning.
Hæðin sem varð að fjalli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.