3.9.2008 | 18:29
Bara að muna að....
....hafa góðan "skrúflykil" við hendina næst.
Merkileg þessi árátta fólks að vilja hafa allt sem stærst
og lengst.
Karlar vilja 20 sentimetra löng typpi, á meðan konur
ásælast "blöðrubrjóst".
Svo eru leggöng kvenna bara svona frekar "meðallöng"
líffæri, sem typpi yfir 17 sentimetrum lafa hálf út úr
við samfarir, og engum karli tekst að höndla
"4 kílóa blöðrubrjóst", hvað þá heldur finna á þeim
geirvörtuna.
Svo hvað er málið?
Því er fólk ekki ánægt með það sem það hefur, ef
tólin og tækin gera sitt gagn?
Og veita ánægju?
Rær, lóð og blöðrur eru bara uppáskrift á bévítans
vesen, og vond og vandræðaleg mál á spítölum.
Festi ró á getnaðarlimnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
ARGGGGH bölvaður bjáninn.
Solla Guðjóns, 3.9.2008 kl. 20:24
Á hverjum degi er auglýst ( í fréttablaðinu): stærra typpi - betra typpi. Ekkert skrítið þótt þeir fari að trúa þessu ræflarnir.
Sigrún Óskars, 3.9.2008 kl. 20:37
En hei..........eitthvað til að fá starsmenn spítala og okkur hin til að hlægja. En hvað kemur það málinu við að hann er LOGSUÐUMAÐUR !!!
Örnólfur Þórir Örnólfsson, 3.9.2008 kl. 21:29
Ef allir voru ánægðir með það sem þeir hafa, mundi ekki seljast.
Heidi Strand, 3.9.2008 kl. 21:48
Jamm...er oft glott illilega á sjúkrahúsum þegar fólk er búið að koma sér í svona ógöngur! Vonandi hefur atvinna hans EKKERT með málið að gera, Örnólfur annars fer fréttin að verða æ ískyggilegri......
Sigríður Sigurðardóttir, 3.9.2008 kl. 21:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.