22.8.2008 | 12:50
Níutíu og fimm ára skrokkur.....
.....en bráðungur haus.
Enda blessuð mærin búin að lenda í reglulegum
"hausafskurði" í gegnum árin 95.
Hefur varla nokkurn frið til að plokka augabrýr
og varalita sig, úúps....þá er hausinn fokinn af.
Sér húsfreyja fyrir sér að annar hver Bauni sé
illa haldinn af "hausafetish", og hafi afskorinn
haus af Litlu Hafmeyjunni upp á arinhillu hjá sér.
En þá er það stóra spurningin: Heldur sú bronsaða
upp á 95 ára afmælið sitt á morgum,
með haus og sporði og öllu "hele klabbet"?
Eða verður hausinn "vant við látinn" á ÖÐRUM STAÐ?
Kominn "afhögginn" í púsningu út í bílskúr hjá
einum af afkomendum "fyrrum drottnara" litla Fróns?
Sem er máske að velta sér upp úr bévítans frekjunni
og útrásinni í gömlu þrælaþjóðinni sinni?
Sem hlær þá geðveikislega, um leið og hann pússar
og muldrar í barm sér:
"Værs'gu, din djævlede islending".
Nei, bara svona pæling!
Húsfreyja óskar "frændum sínum Dönum" innilega
til hamingju með Litlu Hafmeyjuna sína.
Litla hafmeyjan verður 95 ára | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.