24.7.2008 | 18:06
..ţá bođ komu frá....
...Ágústínusi keisara, um ađ skrásetja skyldi alla heimsbyggđina,
stóđ í einni gagnmerkri bók er húsfreyja gluggađi stundum í,
hér í den.
En nú hafa bođ borist frá "ferđamálastjóra" um ađ skrásetja
skuli allar klósettferđir, ţá fariđ er um litla Frón.
Ekki er um ađ rćđa athugun á "útliti, ţéttni eđa magni" ţví
er í salernin fer, ţó víst ţćtti lćknastétt litla Fróns slíkt
fróđlegt. (Gćfi ýmislegt upp varđandi heilsufar meltingafćra
ferđamanna).
Nei, hér er er á ferđinni könnun á ţví hvort "skeinipappír" sé
nógur, hvort "undankúkari" hafi munađ eftir ađ sturta niđur
á eftir, hvort náđhúsin haldi vatni og vindum eđa hvort nćđi
kuldagjóstur um hiđ allra helgasta Frónbúanna, og hvort
nćgt rennandi vatn sé til ţvottar eftir á.
Sömuleiđis leitađ eftir stíflum eđa skemmdum, viljandi eđa
óviljandi á útsalernum.
Sitja nú leiđsögumenn sveittir yfir dagbókum sínum, og
"skrásetja" skeinisathuganir, niđursturtunarathuganir,
og allar ađrar klósettathuganir sínar.
Sér húsfreyja fram á ađ ţetta verđi hinar merkustu
bćkur, ţá fram líđa stundir.
Verđi gefnar út árlega, og 10 "bestu stađirnir til ađ
skíta á" valdir....međ tilheyrandi myndum af klósettum og
útsýninu frá ţeim.
Og mćtti svo halda áfram međ "vinsćldalistana":
"Hvar er skást ađ fá niđurgang á ferđalögum um landiđ",
og hvar er mćlt međ ađ "sleppa sveskjunum" međ
morgunmatnum.
Sér húsfreyja fyrir sér ađ ţetta verđi međ vinsćlustu
bókum litla Fróns, og verđi jafnvel fariđ ađ auglýsa
í sérstakar "klósettferđir" ţá tekur ađ vora ár hvert.
Hehehe, húsfreyja bara VARĐ. Fréttin bauđ svo sannarlega
upp á svona sprell.
En grínlaust ţá sjálfsagt ćrin ţörf á ađ taka "klósettmálin" í gegn,
og gott framtak hjá Ferđamálastjóra.
Skrásetja klósettferđir | |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Athugasemdir
Guđrún B. (IP-tala skráđ) 1.8.2008 kl. 13:10
Ó mć god - sá ţessa frétt allt of seint. man ekkert hvar ég fór á klósettiđ á ferđ minni um landiđ.
Sigrún Óskars, 3.8.2008 kl. 12:45
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.