22.7.2008 | 19:45
Botnar lítið í óhamingju...
...húsfreyja, og er rasandi á fólki sem telur að bágur
efnahagur eða smá vottur af kreppu geti haft áhrif á
hamingju manna.
Hefur sjálf ætíð haft það að sið, að velja þá leið sem er
björtust hverju sinni, og hefur bara gefist bísna vel.
Að búa uppi á litla Fróni finnst húsfreyju dýrðlegt, þá hún
horfir á aðbúnað og lífsgæði kvenna í hinum vanþróaðri
löndum jarðarkringlunnar.
Hér hefur húsfreyja þokkalega hreint loft, fagurt landslag,
yndislega fjölskyldu og góða vini.
Hefur ágæta menntun, þak yfir höfuðið, rafmagn, hitaveitu,
hreint vatn, er í ágætu starfi og gjörsamlega fílar "landa sína"
í tætlur.
Aðra eins vesenista, argintætu-þrasara, besservissera, grínara,
listamenn, söngvara og listkúnstera er erfitt að finna samankomna,
nema hér, á einni lítilli eyju úti í miðju ballarahafi: Voru Ísalandi.
Þetta er himneskt land og dásamlegt þjóðfélag, þar sem þegnar fara
saman í gegnum súrt og sætt: Sögurnar ENDALAUSU, REI-málið
og Baugsmálið, álveradellu, náttúruvæn mótmæli og GAS,GAS,GAS.
Þílíkar allsherjar ekkisens komedíur frá upphafi til enda.
Kjósum yfir okkur arfaruglaða, velviljandi pólitíkusa sem halda að
engin spilling sé til á litla Fróni. Hér séu engir "kolkrabbar" eða
"bláar hendur", og stólpípuelskandi frónbúar hafi "sérstaka"
lása á ímeilinu sínu, og lesi hann og opni aðeins í "einrúmi",
á fjöllum í aftaka veðri. Að hér hygli enginn sér og sinni
"fjölskyldu", þá hann hefur völd og aðstöðu til þess, og gott ef
þeir halda ekki líka að "bensín" sé orka EINGÖNGU ætluð
einkaþotum þotuliðsins.
Þvílíkt myljandi grín.
Ekki hægt annað en að hlægja og gera grín að öllu saman.
Og allt tekur enda, meira segja bensínsverðshækkanirnar.
Allt á niðurleið aftur.
Því þá að vera velta sér upp úr smá kreppu og veseni.
Bara uppáskrift á svartsýnisrugl, þunglyndi, sjálfsvorkun og
skítalykt.
Gleði, góð heilsa, hlátur og hraustir ástvinir er allt sem þarf.
Hamingjan okkar Frónbúanna BLÍVUR.
Hallelúja.
Viðurkennum ekki annað en hamingju | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.