14.7.2008 | 18:46
Bravó!
Verður, samkvæmt frétt þessari, með OFURMINNI á morgun,
húsfreyja.
Svaf alla síðustu nótt.....svona á milli hóstahviða, og svaf í allan
dag líka eftir að hiti og beinverkir brustu á, í skrokk hennar um
hádegisbilið.
Sú stutta hefur pikkað af og til í steinrotaða móður sína, svona
til að athuga hvort "mömmueintakið" sé ekki enn á lífi.
Húsfreyja þá rifið upp annað augað í hita- og svækjumókinu, og
hóstað: "Hóst..ég...hóst...hóst þarf bara að hóst....hóst að
hvíla mig..hóst". Slökkt á meðvitundarstöð, með hraði..zzzzzzz!
Sú stutta bara bísna klár að túlka "hóstaútsendingarnar" rétt,
og hefur horfið aftur fram á vit tölvu, Disneymynda og
"atast-í-kettinum-leikja".
Af og til kötturinn eitthvað kvartsár í dag, og mjálmað ámátlega
við rúmstokk húsfreyju.....húsfreyja haft það af að skakkalappast
einu sinni fram, að henda ketti út í rigningarúðann, á klórstaurinn
sinn, en annars eingöngu hóstað fyrirmæli til þeirrar stuttu um
að "hóst...gefa mat og vatn..hóst".
Eitthvað bráði loks af húsfreyju, undir kvöld.
Alla vega ráku meltingarfæri hennar upp mikið ýlfur og heimtuðu
MAT... STRAX.
Húsfreyja reif upp bæði augnlok, og hóstaði sig fram í eldhús og
beint í ísskápinn.
Síðan hringt neyðarsímtal í bónda, og hann reddaði kjúllum og
hamborgara ala McDonald handa þeirri stuttu.
Á morgun ætlar svo húsfreyja að byrja að skrá "æviminningar" sínar,
þar sem hún reiknar með því, að minni hennar verði alveg svínslega,
BRILLIANT gott, eftir allan svefninn.
Ætlar að byrja á "frumbernskunni".
Góður svefn getur eflt minnið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Mér finnst eins og að önnur hver manneskja sé með flensu heima, ljóta árans pestin.
Heiður Helgadóttir, 14.7.2008 kl. 19:14
Sárt til þess að hugsa, að við þjáningasystur og bræður í pestinni, séum að eyða sumrinu í þennan andsk......
Knús á þig Heidi.
Sigríður Sigurðardóttir, 14.7.2008 kl. 19:19
það var víst ég sem rændi góða veðrinu austur á firði það bætir sko ekki þessa pest sem er að ganga, en ég varð. Kisurnar urðu að komast út að leika. Batakveðjur
halkatla, 14.7.2008 kl. 19:20
Þakka Anna mín.....væri svo gott ef þú gætir "skilað" aftur góðviðrinu svona í kringum 25. júlí.
Sigríður Sigurðardóttir, 14.7.2008 kl. 19:27
Ertu svona lasin kona!!! Fardu til læknis. Hjålp, nú get eg lika haft åhyggjur af heilsuleysi æskuvinkonunnar. Sit hér støkk i Norge, og get varla bedid eftir ad thér séu sýklalyf gefin, reikna med ad allt annad hafi verid profad?????
Unnur (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 12:48
Hóst, hóst... ÉG LIFI enn..., vinkona, en eitthvað hefur 9 lífum húsfreyju fækkað í pest þessari, gott ef þau eru ekki kominn í 6 og hálft eftir hóstandi hörmungar síðustu nætur!
Sýklalyf!? Hurðu, er hjúkka, og tek ekki lyf nema gapandi hyldýpið blasi við heilsufarslega og "maðurinn með ljáinn" standi glottandi yfir mér. Svo ég hósta þessu bara úr mér sýklalyfjalaust! HÓST!
Sigríður Sigurðardóttir, 15.7.2008 kl. 13:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.