12.7.2008 | 13:14
Blindraletur?
Spyr þá húsfreyja: Eru margir flugmenn jarðakringlu okkar "blindir"?
Fjarri því að húsfreyja vilji gera lítið úr réttindum blindra eða hæfileikum
þeirra, enda vinnur hún á deild fyrir blinda öldunga sjálf.
En enginn af blindum öldungum hennar hefur verið flugmaður
á seinni árum, og jafnvel nokkuð um að hennar fólk hætti að aka bíl,
þá sjónin hefur daprast.
Þykir hennar blindu öldungum það skynsamlegt og ráðlegt, þá
þeir sjá ekki lengur götuljós eða gangandi vegfarendur á ferli.
Veit húsfreyja að nú eru nokkuð aðrar aðstæður í háloftum,
lítið sem ekkert um "gangandi fólk", en einhvern slatta af
flugljósum á flugvöllum þurfa flugmenn að sjá, þá lent er
og tekið á loft.
Svo húsfreyja spyr aftur: Er mikið af blindum flugmönnum
til á okkar litlu jörð?
Atvinnuumsókn flugumferðastjóra á blindraleti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
úff, vona að þeir séu ekki margir þessir blindu það væri skelfilegt að vita af einum þannig við stýrið hehehehehe
Guðrún Jóhannesdóttir, 12.7.2008 kl. 13:23
En stelpur, þeir læra blindflug
Sigrún Óskars, 12.7.2008 kl. 15:18
Brrrrrr...blindflug....hrollur.
Sigríður Sigurðardóttir, 12.7.2008 kl. 18:16
Stelpur, það var auglýst eftir flugumferðarstjóra EKKI FLUGMANNI. Ég held samt að ég fari aldrei um flugvöllinn sem um ræðir í fréttinni. Svona til öryggis !!
mosi (IP-tala skráð) 14.7.2008 kl. 13:02
Úúuu.. mosi, nú varð málið öllu VERRA.
Sigríður Sigurðardóttir, 14.7.2008 kl. 19:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.