1.7.2008 | 21:32
Hvaða tegund er...
......"ráderinn" þinn, spurði unga tölvuséníið í símann.
Húsfreyja svitnaði. Svitnaði meira.
"Ráder".....hjálpi mér, hugsaði hún örvæntingarfull.
"Hvur andsk..... var það nú aftur"?
Húsfreyja reyndi að hugsa rökrétt....jé ræt...um tölvuhluti.
"Hmmmmm... "rá" er þverslá eða bjálki, og "der" er skyggni á húfu..."?
"Þversláarskyggni"???
"Djöf...... þetta meikar engan sens" hugsaði húsfreyja sótsvört
af panikk.
Rámaði allt í einu í svarta litla kassann bak við tölvuófétið.
Hafði ekki karl hennar kallað þetta einhverju hrikalegu ónefni,
eins og "ráder", hér einhvern tímann í den?
"ZyXEL" svaraði húsfreyja snöggt, upp á von og óvon.
Sá snjalli lét sér það vel líka, og spurði að aldri "þversláarskyggnisins".
Húsfreyja vissi það, með nokkrum skekkjumörkum þó.
"Settu nú LLi í næsta box, og suv á að vera þar fyrir neðan.
Haltu svo "núllinu" í næsta en settu næsta í 33".
Húsfreyja hlýddi þeim eitursnjalla í einu og öllu.
"Var ekki notendanafnið örugglega ....glabb?" spurði sá ungi.
"Jeminn, hvernig í ósköðunum á ég að muna það", húsfreyju lá
við öngviti af stressi.
"Jú, ég held það" svaraði hún skjálfandi róm.
"Nú smellir þú bara á "save settings" og þá á þetta að vera komið",
tölvusnillinn að springa úr jákvæðni.
Neipp!
Ekkert að gera sig.
Slökkt á "þversláarskyggninu" og svo byrjað upp á nýtt.
Eftir hálftíma LLI, password, suv, núll og glabb small netið
að lokum inn! Sá ungi ekkert nema almennilegheitin og
þolinmæðin, og sagði ekkert að þakka.
Húsfreyja steig stríðsdans af gleði á parkettinu!
Hún var aftur orðin nettengd.
Vill að eftirleiðis haldi karl hennar sig við "eitt" símfélag, og eitt
AÐEINS!
Og að ráderinn verði með hraði skýrður "netskyggnir".
Er svo búin að panta ferð út í Eyjar með flugi, húsfreyja....
...Á NETINU!
Fer með þá stuttu næsta laugardag, og aftur heim á þriðjudag.
Gefur sér þá kannski tíma í að kíkja á bloggvini sína næstu daga,
áður en Eyjaferð skellur á.
Megi góðir draumar fylgja ykkur öllum inn í sumarnóttina.
Athugasemdir
Bráðfyndið Sigga! Been there ... done that!
Fínar myndir frá Tenerife. Hafðu það gott í Eyjum.
Sjáumst vonandi áður en áður líður
Bestu kveðjur
Steffý
Steffý (IP-tala skráð) 1.7.2008 kl. 22:46
Steffý! Yndislegt að fá komment frá þér.
Reyni að hitta á ykkur í sumar, vinkonurnar mínar. Svona þegar þið eruð búnar að vísitera forsetann og leggja heiminn að fótum ykkar.
Bið að heilsa Rúnu.
Sigríður Sigurðardóttir, 2.7.2008 kl. 18:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.