28.6.2008 | 14:18
Ef Bogi og Örvar....
...eru orðnir flugmenn í hjáverkum, verður húsfreyja að versla
sér eitt stykki "árabát", þá kemur að borgarferð til Prag í haust.
Ekki hefur hún efni á dýrari farskjóta, eins og verðbólgan er.
Líst henni ekki á gang mála í samgöngum, hvorki á lofti, láði né legi.
Þykir henni einsýnt, að rölta með tjaldræfil upp í Esju, eða út í
Geldinganes, verði hennar hlutskipti í ferðamálum með þessu
áframhaldi.
En húsfreyja er ferðafíkill mikill, og næsta víst að hún fíli sig sem
andskotinn í útlegð á Suðurheimskautalandinu, verði allar samgöngur
ótryggari, áhættusamari og erfiðari vegna bévítans brennivísdrykkju.
Þykir henni þetta hið versta mál, og vill senda flugmönnum, skipstjórum
bifreiðastjórum öllum, hugheilar óskir um betra líf, með minnkandi víndrykkju,
enn minni eiturlyfjatöku og vaxandi edrúmennsku um ókomna tíð.
Vonar hún að þeir verði allra einstaklinga "lukkulegastir" í lífinu, svo
hvorki þurfi þeir að brúka vímuefni, né missa einn einasta dag úr vinnu
vegna þynnku.
Verði sönn gleði ætíð þeirra förunautur....og húsfreyja getur þá kannski
sparað sér "árabátskaupin" í haust.
Of margir fljúga fullir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þú selur þá bara í sæta-ferðir með árabátnum, en þá verður þú að skilja brennivínið eftir heima
Sigrún Óskars, 28.6.2008 kl. 18:27
Brilliant hugmynd, Sigrún.
Auglýsi hér með sætaferðir á "tólfæringi".
Tvær árar fylgja hverju sæti, og eru ferðalangar beðnir um að taka hraustlega á því við róðurinn! Svolítið langt til Prag.
Boðið verður upp á léttar veitingar í ferðinni: Íslenskt blávatn og heimasmurt brauð með kavíar, og flatkökur með hangiketi.
EKKERT BRENNIVÍN!
Stutt á salerni frá hverju sæti "út fyrir borðstokkinn, takk". Hver ferðalangur taki 2 rúllur af salernispappír með sér.
Skjólgóðir sjóstakkar algert "must" í ferðinni. Mæli með 66°norður.
Hægt að panta ferðir hjá undirritaðri, þá sígur á seinni hluta sumars, og internetið verður komið í lag í kompjúterræfli húsfreyju.
Kveðja Sigga.
Sigríður Sigurðardóttir, 29.6.2008 kl. 12:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.