24.6.2008 | 12:34
Herfilegur gjörningur þetta...
...á Jónsmessunótt.
Gott að lögreglan komst í málið og fékk borgið konunni.
Eitthvað hefur "góðkunningi" þeirra dönsku varða laganna, illa miskilið
siður og venjur á Jónsmessunótt.
Og telur ekki húsfreyja að ungi maðurinn hljóti gæfu af athæfi þessu.
Hefði hinum unga ógæfumanni þeirra þarna í Rebæk Sö, verið nær að
leita uppi hóp af eðal-mjólkurkúm og spjalla við þær um daginn
og veginn.
Hvort eð er að sýna merki um mergjað vitstol, sá ungi, svo ekki hefði
skipt miklu, þó eitthvað hefði týnst af gáfum við beljuspjallið.
Húsfreyja nýtti sér hins vegar sólina á Jósnsmessu, og hlaut
roða í kinnar og skaðbrennt nef í laun.
Tölvuófétið á heimilinu enn sambandslaust við umheiminn,
og húsfreyja komin á heljarþröm af óþolinmæði.
Fer að styttast í að kompjúterinn sá verði "myrtur" í alvöru,
í skjóli nætur....af húsfreyju sjálfri!
Reynt að drekkja konu á Jónsmessuhátíð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Kálaðu bara kompjúter skömminni
Heiður Helgadóttir, 25.6.2008 kl. 13:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.