20.6.2008 | 11:09
Jeminn!
Húsfreyja hyggst nú til ferða norðan heiða um helgina.
Er henni ekki vel rótt, þar sem hvítar flygsur í fjarska utan vegar,
eru orðnar uggvænlegar.
Ekkert sjálfgefið lengur, að þar sé hin yndisfríða sauðkind okkar
Frónbúa á ferð, þá húsfreyja grýnir á nærsýnum augum.
Gott ef ekki er allt orðið vaðandi í hvítabirnum upp um allar heiðar,
og þá bara spursmál hvenær þeir rölta niður til byggða,
og á tún og engi.
Kaldsvitnar nú húsfreyja og blosshitnar á víxl af hugarvíli, angist og
kvíða.
Búin að setja tengdó í það að leita "ísbjarnarspora" á Hvammstanga,
og í 30 kílómetra radíus þar í kring.
Karlinn er að "ryðhreinsa" haglabyssu sína, þó húsfreyja sjái ekki
gagnsemina af gömlum "rjúpnahólki", ef hvítabjörn skyldi skyndilega
standa öskrandi á miðjum þjóðvegi, í árásarham.
Svona eins og að ætla að stöðva eldgos í Kötlu, með því að dæla
vatni á það úr einni brunabílsslöngu.
Jú og jæja. Og þó.
Kannski að hvítabjörnum sé illa við hávaðann af byssufretinu.
En það er húsfreyju líka.
Hmmmmm...ætti ef til vill að kanna hvort "búrið frá Baununum"
sé ekki enn á lausu, og þá kannski til "útláns".
Jamm, ekki hægt að segja annað, en að lífið sé bæði
spennandi og skrítið, hér uppi á litla Fróni.
Verst að húsfreyja verður líklega að veðsetja íbúð sína á nýjan
leik, til að standa undir bensínkostnaðinum norður.
Leit að hálendisbirni heldur áfram | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.