30.5.2008 | 17:24
Subbulegur HREINN þvottur?
Hvernig í ósköpunum bitu yfirvöld í Southampton, New York það í sig,
að hreinn ilmandi þvottur væri "subbulegur"?
Nota Southamptonbúar öðruvísi þvottaefni, en aðrir íbúar heimsbyggðarinnar?
Verður þeirra þvottur þá kannski "öllu verri" eftir þvottinn?
Drullu-mósku-brúnn, rifinn og tættur af notkun óþverra þvottaefnis.
Eða jafnvel svartflekkóttur og illa lyktandi eins og stífluð geimsalerni?
Og engar smá sektir, fyrir að vilja fá ilmandi útlykt í hreinan þvott.
Sei, sei nei!
Sjötíu og fimm þúsund kall eða hálfs árs fangelsi.
Misyndismenn uppi á litla Fróni, hafa sloppið með vægari dóm fyrir nauðgun
eða líkamsárás.
Jamm. Þeim dettur ýmislegt í hug, úti í henni Ameríku.
Snúrubann afnumið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Solla Guðjóns, 30.5.2008 kl. 21:34
þetta hefur eitthvað með útlit að gera held ég
Heiður Helgadóttir, 31.5.2008 kl. 09:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.