15.4.2008 | 08:19
Harðir á strippinu og gubb!
Húsfreyja horfði á eftir bleikklæddri dótturinni og Einari besta vini, rölta af stað í skólann. Átti frí sjálf, og hugsaði sér gott til glóðarinnar. Skella sér í náttfötum með málgögnin upp í rúm. Jamm og kannski fá sér eina kríu um níuleytið.
Forsíðan á "24 stundum" blasti við augum húsfreyju, er hún opnaði blöðin sín:
" Harðir á strippinu".
"Sönnunargagnið var GUBB".
Húsfreyja lagði það blaðið frá sér, hálf ómótt bara af fyrirsögnunum. Greip "Fréttablaðið":
"Þiggja greiða fyrir kynlíf"
"Mínúta getur kostað þrettán mánaða bið".
Húsfreyja reif sig upp úr volgu rúminu, skellti blöðunum vonskulega á eldhúsborðið og pældi í því smá stund, hvort það væru samantekin ráð blaðamanna að hafa af henni notalegar stundir og jafnvel "kríu" þá hún væri í fríi? Rámaði þá í bókabunkann sem hún verslaði í Perlunni nú síðvetrar. Hefur ekki komist yfir að lesa nema eina af þeim bókum.
Svo nú er húsfreyja á leið upp í rúm aftur með "Þórberg", ævisögu Árna prófasts, og hlakkar mikið til lestursins. Verst að "krían" dettur þar með, út af listanum yfir það sem húsfreyja ætlaði að gera í dag. Jæja, kannski má byrja á smá lúr, áður en lestur hefst.
Njótið dagsins.
Harðir á strippinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
J´h´þeir ku fara mikinn þarna í Mosó
Solla Guðjóns, 16.4.2008 kl. 00:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.