11.4.2008 | 18:07
Furðulegt...
.....þegar jákvæðasta fréttin á mbl.is, sem húsfreyja fann eftir heimkomu frá Tenerife, fjallar um hressandi "þefkattaskítskaffi". Hefur húsfreyja aldrei tengt kaffi við skít á einn eða neinn hátt, fyrr en nú, en er að hugsa um að endurskoða kaffidrykkju sína
Flestar aðrar fréttir verið daprar á meðan ferð húsfreyju stóð yfir. Banaslys í umferð og við vinnu, brennandi turnar og krónan í djúpum skít. Þykir húsfreyju sárt að missa fólk á besta aldri af slysförum, og slæmt þegar brunar og önnur óáran sækir að landanum.
Þefkattaskítskaffið hressir en kostar sitt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
velkomin heim
Guðrún Jóhannesdóttir, 11.4.2008 kl. 20:31
Þakkir, mín kæra.
Sigríður Sigurðardóttir, 11.4.2008 kl. 21:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.