10.4.2008 | 22:01
Hana!
"Fangi" á litlu hálfuppgerðu hóteli á Laguna á Tenerife. Húsfreyja rorraði svefndrukkin í litlu hvítrykugu forstofunni á hótelinu, sem hún vissi ekki einu sinni nafnið á, og horfði stjörf á tæplega þrítuga unga manninn, sem hún hafði deilt með svítu hálfa nóttina. Klukkan var þrjú að íslenskum tíma, fjögur um morgunin á Tenerife. Sá ungi bjástraði og bisaði við dyrnar, en ekkert gekk.....allt harðlæst. "For fa'en" hugsaði húsfreyja, "nú yrðu þau allt of sein bæði tvö, og allt færi í tjón og tjöru". "Hvað segði nú bóndi húsfreyju þegar hún mætti ekki á réttum tíma, svo ekki sé talað um ólétta eiginkonu unga mannsins"? Húsfreyja horfði örvæntingarfull í kringum sig, og leitaði eftir einhverju lífsmarki á hótelinu fyrir utan þau tvö. Myrkur, dauða, drungans þögn.
"Er enginn næturvörður á hótelinu"? spurði húsfreyja vonleysislega. Jú, var sjens að bjalla eftir aðstoð, en þá þurfti sá ungi að hlaupa aftur upp á hótelsvítuna. Húsfreyja beið í myrkrinu, alein, í rykinu, hnerraði og var að fá myljandi astmaskít af öllu iðnaðarmannarykinu.
Köttur mjálmaði angistarlega rétt fyrir utan dyrnar.......hrooooollur!
Húsfreyja gjóaði augum fram í bakgarðinn og upp í stjörnubjartan himininn. Leitaði eftir skuggalegri uglu að væla...eða jafnvel Drakúla sjálfum á sveimibrrrrrrr... þetta var orðið verulega spúkí!
Framhald á morgun....hehehe.
Húsfreyja VERÐUR að fara að sofa.
Athugasemdir
HALL'O áttir þú ekki að vera að slappa af í sólinni....hvaða vesen var þetta..sorrý þú hefur auðvita tekið vesen með þér út....og Branda með vesen hérna heima á meðan...allir búnir að léttast um tvö kíló...að leita af henni.....mjá
arny (IP-tala skráð) 11.4.2008 kl. 14:06
bíddu, bíddu... erum við semsagt farin að segja frá þessum skelfingum með bröndu í gríni?!? ég var skömmuð í tætlur og svo var það ekki einu sinni ég sem missti hana út!
Kristín Henný Moritz, 11.4.2008 kl. 15:52
úff
Guðrún Jóhannesdóttir, 11.4.2008 kl. 20:30
Hva...smá vesen. Hvað er það fyrir "Nóbelsverðlaunahafa í veseni"? Ekkert mál.
Jamm, en Hennsla mín! Kettir TÝNAST! Og hún fannst aftur og það er aðalmálið. Takk fyrir pössunina. Mjááááááá.
Sigríður Sigurðardóttir, 11.4.2008 kl. 23:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.