19.3.2008 | 19:47
Pirringur!
Þar hvarf eitt snilldarbloggið húsfreyju inn í "bloggeilífðina miklu"...aaaarrrrrgh! Húsfreyja ekki í neinu stuði að pikka inn allt aftur. Á von á gestum í mat og gistingu í ofanálag, svo PIRRINGUR! Þolir húsfreyja illa þegar netið dettur út, þegar hún á bara eftir að vista og birta. Verður eitruð, pirruð og viðskotaill í a.m.k. hálftíma! Svo þetta verður að duga:
Forlög koma ofan að,
örlög kringum sveima,
álögin úr ýmsum stað
en ólög fæðast heima.
Páll Vídalín.
Húsfreyja ætlar að ergja sig yfir "ólögum, álögum og slæmum kompjúterörlögum" næst!
Athugasemdir
Óska þér Gleðilegra páska. Knus
Heiður Helgadóttir, 20.3.2008 kl. 09:30
Þakka ykkur ljúfastar, og sömuleiðis.
Sigríður Sigurðardóttir, 20.3.2008 kl. 13:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.