27.2.2008 | 18:54
Mér er spurn...
.. leitar maður til tannlæknis eða augnlæknis í svona málum? Eða til beggja?
En er þetta annars ekki ávísun á að "tannálfurinn" missi alla sína viðskiptavini í einum hvínandi hvelli, og augnlæknar fara að versla inn tennurnar grimmt af börnunum í staðinn?
Og orðið "augntennur" er allt í einu farið að meika myljandi sense! Ég tek ofan fyrir læknavísindinum. Þau koma mér sífellt á óvart. Vona samt að ekki þurfi "fullorðinstennur" í svona mál, því þá fer annar hver maður að verða tannlaus fyrir aldur fram, og gervitanngómar fjúka upp vinsældalistann.
Endurheimti sjónina með tönn í auganu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Frábært alveg hreint og ótrúlegt hvað er hægt að gera í dag.
Guði sé lof fyrir tækni og vísindi.
Solla Guðjóns, 28.2.2008 kl. 10:35
A U G N T Ö N N
Allt er nú hægt!
Guðrún Jóhannesdóttir, 28.2.2008 kl. 13:37
Turetta Stefanía Tuborg, 28.2.2008 kl. 22:20
Þetta er bara "dásamaleg" frétt, stelpur.
Sigríður Sigurðardóttir, 29.2.2008 kl. 12:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.