2.2.2008 | 21:47
Help!
Heimur á heljarþröm, segja fjölmiðlar. Móðir jörð að ofhitna, af mannavöldum, um leið og við hér á litla Fróni fáum einn kaldasta veturinn, í mörg herrans ár. Hefðu kannski betur sent lagið "Help", með Bítlunum út í geiminn, NASA-menn. Því okkar veðurvísindamenn vita greinilega ekkert í sinn haus, hér á jörðu. Svo "hjálp" væri vel þegin, svona til að lesa í framtíðarhorfur mannkyns.
Hef svo annars verið of upptekin til að blogga. Hef legið yfir gömlum Dave Allen þáttum á YOUTUBE. Hann er bara grenjandi snilld. Ég veinaði af hlátri í allt gærkvöld. Eru klassískir brandarar, og myljandi fyndnar pælingar um trúmál, barnauppeldi, mannlegt eðli í sorg, gleði og hræsni. Mæli með Dave. Vil fá hann aftur á skjáinn.
Bítlalagi útvarpað í geimnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.