7.12.2007 | 23:43
Illa farið með góðan hákarl!
Man enn þá stund er ég fékk að smakka hákarl í fyrsta sinn. Stóð með pabba sáluga niðri í köldu geymslu í Grænuhlíð 20 í Eyjum. Mútta mín stóð tvo metra frá, frammi á gangi, með systur mínar veinandi af angist yfir vondri lykt af hákarlinum. Pabbi snöflaði í sig bita, og systur mínar skræktu af viðbjóði og hrylltu sig
. Mamma hló dátt, og fékk sér bita sjálf, systurnar flúðu upp í kjallaratröppur, en ég 8 ára, kyngdi ótt og títt: "Gefðu mér bita, pabbi". Hah, nú skyldu litlu systur sko sjá hvers ég var megnug
. Og pabbi skar bita af hákarlinum illalyktandi og kasúldna, ég greip fyrir nefið og skellti honum í mig. Og svei mér ef hann bragðaðist bara ekki mun betur, en ég hafði búist við. Og bað um annan bita
! Hef borðað hákarl með bestu lyst síðan. Ætli þetta sé ekki í genunum að geta borðað þetta góðmeti?
Gordon Ramsay ælir íslenskum hákarli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.