Mjólkurbrúsaþjófnaður.

  Skyldi þó ekki hafa verið hann "Bjössi á mjólkurbílnum"Tounge?  Nei, alltaf slæmt þegar fólk finnur sig í því að stela og skemma fyrir öðrum.  Ber ekki vott um góðan karakter. 

  Á mínu bernskuheimili áttum við tvo mjólkurbrúsa, sem afi minn tölti með, til hans Tobba á Kirkjubæ, og verslaði af honum mjólk.  Annar var lítill fjögra eða fimm lítra brúsi, en hinn tók tíu lítra.  Var afi bæklaður í mjöðmum, svo það tók ansi mikið á að sækja mjólk í þá báða í einu.  Þó lét hann sig iðulega hafa það, gamli maðurinn.  Var samanrekinn, þykkur um herðar og nautsterkur, afi.  Man eftir því, að á sumrin var eingöngu sótt mjólk í minni brúsann, því enginn var ísskápurinn til að halda köldu, svo mjólkin var hengd út í forsælu, til að halda henni kaldri.  En á veturna var alltaf sótt mjólk í báða brúsana.  Var bara lítið peð á þessum árum, og fimm ára flutti ég í nýtt hús með glænýjum ísskáp, rennandi vatni, olíuupphitun og baðkari á baðherbegi.  Þá lögðust einnig af ferðir afa með mjólkurbrúsana, því "hyrnur" fullar af mjólk fengust nú út í Kaupfélagi.  En brúsana áttum við samt í mörg ár, og gott ef ég fékk ekki að "drullumalla" eina af mínum alræmdu drullukökum í litla brúsann eitt sinn.  Og svo ræktaði ég í honum "Sóleyjar og Baldursbrár" eitt áriðGrin.


mbl.is Hverjir stela mjólkurbrúsa?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiður Helgadóttir

Man vel eftir brúsunum, svo komu fernurnar.

Heiður Helgadóttir, 23.10.2007 kl. 22:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband