30.8.2007 | 13:11
Duló?
Kannski einhver með "ofsakláða" hafi rænt birni
. Eða hvað skildi vera í stóra afmælispakkanum úti á sólpalli, frá karli mínum til mín, í tilefni dagsins
? Hmmmmmmm. Verð ef til vill að kíkja á málið, á jú afmæli í dag
. Nei, smá grín. Efast um að karlinn minn sé nokkuð farinn að versla afmælisgjöf fyrir frúna. Varð að mæta í hjartavernd í morgun, og síðan beint í vinnu, blessaður. Og ég, konan á óræðum, brilliant góðum aldri, ætla að bregða mér til ferða austur fyrir fjall í kaffi til múttu. En blessuð sólin er farin að skína mér til heiðurs, hér inn um stofugluggann, og mér líður ekkert verr en í gær. Jafnvel betur. Svo ég er í góðum málum. Það er verra með ísbjarnarþjófinn! Hvar í ósköpunum ætlar hann að koma flykkinu fyrir? Sé reyndar fyrir mér forláta garðskála, vafinn rósum upp um allar súlur, þar sem inni blasir við svolítið tuskulegur ísbjörn að klóra sér
. En ég hef nú alltaf haft svolítið "líflegt" ímyndunarafl. Þarf svo að bjarga kettinum inn af sólpallinum, og ná í þá stuttu í skólann. Gangið ætíð á Guðs vegum.
Dularfullt ísbjarnarhvarf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.