3.8.2007 | 11:02
Hah! Alveg vissi ég þetta!
Var búin að blogga, að suðurhafslægðin "Chantal" væri engin ávísun upp á "helgarbjörgun", heldur miklu fremur ávísun á kolvitlaust veður inni í Dal. Og "björgunarsveitir"!! Og það er lítið gagn í því að tjalda, ef tjöldin fjúka jafn óðum á "haf út"
. Það er bara helv... tjón og tjara fyrir þjóðhátíðargesti. Gott hjá mótshöldurum að banna það að tjalda, þekkja sína heimabyggð og veðurfar. Myljandi hellingur af húsnæði inn í bæ fyrir fólk, þar til hægt verður að tjalda. En þvílíkt "æluveður" hlýtur að vera á sjónum, með "æludalli allra æludalla", Herjólfi
. Ferðalangar á því skipinu eiga alla mína samúð. Og ég gleðst "innilega" í hjarta mínu, að vera bara að "bílast" þessa helgi, upp í sumarbústað. En þjóðhátíðargestum óska ég góðrar skemmtunar, þegar veðurham slotar, og brennan og flugeldasýningin eru megaflott mál. Bara eitt! Hver verður með "brekkusönginn" ef Johnsen verður ekki með?
Bannað að tjalda í Herjólfsdal í kvöld vegna slæmrar veðurspár | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
þetta er reyndar frétt frá í gær ; ) í dag og næstu daga er norðanátt, og það þýðir bara eitt í vestmannaeyjum 25 stiga hiti og Logn : )
Rúnar Ingi Guðjónsson, 3.8.2007 kl. 11:29
Logn??? Veit vel að fréttin var frá því í gær, enda vísaði ég í bloggið mitt "frá því í gær". En sem gamall Eyjamaður veit ég vel, að þeir eru "fáir" dagarnir sem "blankalogn" er í Eyjum! Ertu áreiðanlega ekki að tala um "logn á Vestmannaeyísku", þ. e. 3-7 metrar á sekúndu? Trúi þessu hinsvegar alveg með 25 stiga hitann!
Sigríður Sigurðardóttir, 3.8.2007 kl. 13:04
Fínt að tjalda í garðinum hjá mér
Guðrún B. (IP-tala skráð) 5.8.2007 kl. 17:19
Chantal - það hljómar mjög franskt - er með sín siðfáguðu áhrif hérna fyrir austan hjá mér, það er ljúfur blær og svona, allir rosalega fínir á því
halkatla, 5.8.2007 kl. 17:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.