Breiðarvíkurhjónin í góðum málum.

  Langar að hrósa þeim ágætu hjónum í Breiðavík, Keran Ólason og Birnu Atladóttur.  Þrátt fyrir mikla neikvæða umfjöllun um staðinn í fjölmiðlum í vetur, hafa þau ekki gefist upp.  Þau reka þar gistiheimili, enda margar náttúruperlur að finna á þessu landssvæði.  Leitt þótti mér að lesa í Fréttablaðinu, að þau hefðu fengið hótanir um líkamsmeiðingar, í kjölfar umfjöllunar um Breiðavíkurdrengina.  Þessi hjón eiga heiður skilinn fyrir að nýta húsnæði þetta, á jákvæðan hátt, umbreyta erfiðri orku staðarins þar með,  koma henni í góðan farveg og veita ferðaþjónustu í leiðinni.  Þau eiga enga sök á ljótum atburðum fortíðar, og út í hött að hóta þeim líkamsmeiðingum, fyrir það eitt að reka gistiheimili með skuggalega fortíð.  Og einnig finnst mér það gott mál, hvernig þau hafa tekið á móti þeim, er viljað hafa sækja staðinn heim, til að  takast á við erfiðar tilfinningar, eftir að hafa upplifað þar ömulega vist.  Allir verið velkomnir.  Breiðarvíkuratburðirnir eru ljótur blettur á þjóðarsálinni, og hann svíður sárt.  En að ráðast gegn saklausu fólki, hvers eini glæpur er að  "eiga staðinn"  sem hinir hörmulegu atburðir gerðust á, er ekki rétta leiðin til að taka á málinu.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband