Dómskerfi í sumarfríi eða einskær tilviljun?

  Merkilegt dómskerfi hér uppi á litla Fróni, og margir dómar stórfurðulegir.  Mætti halda að það færi eftir árstíðum, hve þunga refsingu þú getur fengið fyrir líkamsárás.  Refsing er nánast núll og nix á sumrin, þegar fáliðað er af starfsfólki í dómshúsum og fangelsum (45 dagar "skilorðsbundnir"), en svo koma fangelsisdómar upp á einhverja mánuði eða ár á haustin og veturna.  Eða er kannski bara einstök "tilviljun" að svo mildilega var tekið á málum í þetta sinn.  En krampar teljast aldrei góðs viti á mínum vinnustað, og oft merki um alvarlega hluti að gerast í höfði.  Svo ég hefði ekki talið árásarmanni það til tekna, að hafa orsakað krampa hjá fórnarlambi sínu.  Þvert á móti!  En skilorð varð það!  Vona bara að gerandi sé ekki á leið á aðra Þjóðhátíð í Eyjum!  Lögregla þeirra Eyjamanna má þá aldeilis vera á tánumErrm !
mbl.is Skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás á Þjóðhátíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband