2.6.2007 | 17:50
Fljúgandi furðuhlutir á vegum suðurlands!
Nú var ég stálheppin! Sjúkkit!! Er ekki á leið í ferðalög um vegi "suðurlands" þetta sumarið, eins og síðustu þrjú sumur
! En það bíður manns mikill lífsháski, ef maður fer til ferða á þeim slóðunum, um þessar mundir! Angistarfullar "gæsir" stúta framrúðum bíla á sjálfsmorðsflugi sínu, og "vatnsfælnir bátar" flögra um og rústa Landcruiserum
! Næsta víst að ég fengi næsta "feyskna og fúna kirkjuturn" inn um bílrúðuna, eða "rótarlaus" risatré á flandri um himingeiminn, þyrfti ég nauðsynlega á suðurlandið
! Enda ég og mín stórfamilía alræmdir "vesenistar"! Væru slík verðlaun til, værum við búin að vera "Nóbelsverðlaunahafar í veseni" árum saman
!! Svo ég er heppin, að hafa fengið sumarbústað í Svignaskarði að þessu sinni, en ekki á Grímsnesinu! Verst að ég þarf að aka fram hjá Snæfellsnesafleggjaranum þangað!! Hef hermt að það sé einhver helv.... hellingur af "fljúgandi furðuhlutum", á sveimi um Snæfellsnesið..........það væri eftir öðru, ef ég fengi einn "fljúgandi disk" inn um bílrúðuna hjá mér, þegar við skreppum í skarðið
! Og ég á flunkunýjum Honda Accord.......
! VESEN!!
Mætti fljúgandi bát | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.