27.12.2012 | 16:29
Þýskir harðlífis-bílstjórar í miklum skattavanda.
Tarna er ljótt.
Þýsk skattayfirvöld sækja nú "hart" að flutningabílstjórum sínum,
enda ekki hægt að vera að greiða "full laun með skattaívilnunum",
þá menn sitja á salerninu daglangt að "tefla við páfann".
Hafi menn jafnvel málgögnin þýsku með sér á "skiteríið",
sem jafnan eru töluvert þykkari lesning en Mogginn og Fréttablaðið
hér uppi á litla Fróni, og lesi grimmt og vendilega á meðan
athöfninni stendur.... og þrýtur heldur aldrei skeinipappír þá menn hafa
þennan háttinn á.
En tímafrek getur salernisferðin orðið, sér í lagi þá helgarblöðin eru með
í för og séu menn flutninga í ofanálag að berjast við mergjað
"harðlífi", þá eru mínúturnar fljótar að tikka og verða að klukkustundum.
Og allt á bullandi launum og jafnvel undanþágu frá skatti einnig.
Flutningabílstjórum þýskra hreinlega greitt stórfé fyrir að "skíta"!
Tarna er ljóta óáranin, og ekki nema von að þýskum skattayfirvöldum blöskri.
Aðrir þegnar hins mikla þýska ríkis, geta nefnileg lent í því að
þurfa að "greiða fyrir" að láta dúndra í almenningssalerni......
og þá jafnvel borga "vaskinn" líka?
Og er það réttlæti?
Neipp.
Þýskir nákvæmir og réttlátir menn, og eftirleiðis verða "harðlífismenn"
flutningabílstjóra að kukka "launalaust, blaðalaust og skattaívilnanalaust"...
sem og aðrir "mjúk-hægða" flutningabílstjórar þeirra.
Og allra best væri, að þeir þýsku bílstjórar dunduðu við slíkt
"skítlegt" athæfi "í FRÍI, HEIMA hjá sér...
og þegar restin af fjölskyldunni er í andakt með sunnudagsmessuna
Í BOTNI í þýska sjónvarpinu".
Orgelleikur alveg eðalfínn "undirleikur" þá mikið gengur á, og sá "stóri"
loks rennur niður.
Gerir "dramatíska" stund "ENN DRAMATÍSKARI"!
Tónlistin í "Star Wars-mynd" gerir einnig sama gagn....skiptir
engu hver af þeim ágætu kvikmyndum verður fyrir valinu.
Nei, þetta bara svona hugmyndir sem húsfreyja vill læða að þýskum
skattayfirvöldum.
En gott að þýskir eru að taka "skattamál"sín föstum tökum, enda
engin "skítmenni" þar að störfum, hvorki með "skítlegt eðli" eða
"skítkast" yfir "skítavinnu"!
Góðar stundir og megi þið öll eiga góða "losun" yfir hátíðar.
![]() |
Skrái lengd og fjölda klósettferða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Spaugilegt | Breytt 28.12.2012 kl. 09:00 | Facebook
Athugasemdir
Þessi frétt slær öll met!!! 2012
jóhanna (IP-tala skráð) 27.12.2012 kl. 17:28
Er farið fram á að lögfræðingar skrái klósettferðir sínar með sama móti? Máttu menn fara á klósettið í útrýmingarbúðunum? Er Þjóðverjum treystandi til að ráða yfir Evrópu mikið lengur?
Spurning (IP-tala skráð) 27.12.2012 kl. 18:39
Góð....:)
Lengi beðið eftir að Steingrímur og co komið með einhverja wc-skattheimtu.
Viss um að það fari bráðum að koma...
Bestu kveðjur..:)
Halldór Jóhannsson, 27.12.2012 kl. 20:53
Já þetta er aldeilis makalaus frétt, Jóhanna
.....veit ekki Spurning, hvort lögfræðingar séu einnig settir í salernisferðauppmælingar í landi þýskra...aldrei að vita samt
...læt hitt kjurt liggja....þakka þér Halldór...já, aldrei að vita nema Steingrímur nái inn einu góðu "salernisferðaskattsfrumvarpi" fyrir kosningar
....Þakka ykkur kærlega innlitið og komment.
Sigríður Sigurðardóttir, 27.12.2012 kl. 21:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.