19.12.2012 | 19:47
Bráðum koma blessuð.......eða nei! Ekkisens heimsendi!
Systurdóttir hringdi.
"Sigga, þetta er stórfurðulegt! Það hringsóla hér 40 svartar og hvítar
dúfur hring eftir hring niður í bæ. Eru þær þá ekki að boða
heimsendi þann 21, ha?
Húsfreyja gjóaði augum á málgagnið sitt, sem var að vandræðast
með heilu heilvísku tonninn af dauðri síld í einhverri fjöru á Snæfellsnesi.
"Kolgrafarfjara! Hvurslags dauðadóms- og heimsendanafn er það"?,
hugsaði húsfreyja, um leið og hún svaraði systurdóttur að bragði:
"Nú og jaso, bara við það að bresta á,
"heimsendinn", og ég sit þá uppi með einhver andsk... haug af
"ógefnum" jólagjöfum...og sem ég losna þar með ALDREI við".
Systurdóttir hló; "Ætli það skipti þá miklu máli, frænka, verði heimsendi.
En ég er ekki að trúa því hve löngum tíma ég er búin að eyða í að
góna á þessar dúfur... ég meina, skárra að nýta tímann betur
fram til 21, en í eitthvert dúfugláp".
Jú, húsfreyja gat vel samþykkt það, enda sjálf búin að
eyða drjúgum tíma í BIÐ á herlegri bráðamóttöku landsmanna
inn í Fossvogi...eða rúmum 8 klukkutímum....á tveimur dögum.
Tengdamútta hafði mætt "farlama" að norðan, í keng, á
meðan tengdapápi hafði farið BABÚ inn á hjartadeild með
lífshættulega gangtruflun.
Húsfreyja spítalaðist!
Heimsótti tengdó á hjartadeild, sem var "stuðaður" í réttan takt..
en allt í tjóni og tjöru með tengdamúttu.
Komst með herkjum á salernið, með því að staulast fetið
í einum keng, dragandi nefið eftir gólfinu.
Húsfreyju var nóg boðið, og fór með konuna á slysó.... og BEIÐ.
Lítið að hafa upp úr fyrstu ferð.
Konan SLITIN í mjöðm!
Je RÆT!
"Hún þá "slitin" frá mjöðm og niður í ökkla, með "ofurþyngsli" á
nefi sem aukaverkun".
Húsfreyja gafst ekki upp og fór aftur með tengdamúttu sína á
bráðadeild Fossvogs.
Þar skarpur læknir á vakt sem skoðaði konu vel og vendilega,
og var nokkuð fljótur að finna líklega skýringu á ofsakvalræði
tengdó.
Hrikalegt festumein í vöðvum fyrir ofan mjöðm.
Sterasprauta...og málið var dautt!
Tengdó að hressast með hverjum klukkutímanum sem líður,
og skutlaðist með húsfreyjum, tengdapápa, og barnabörnum
eina herlega verslunarferð upp á Korputorg, og keypti jólagjafir....
sem þá líklega "verða heldur ekki gefnar", hafi systurdóttir rétt fyrir sér.
Jamm.
Heimsendi!
Þann 21. desember.
Allt búið!
Dauði og djöfull..og full flaska af Rommi....
eða nei, það var vandræðagangurinn
í "Gulleyjunni".
En ENDALOK alls sem er, var og verður
hér á móður Jörð.
Tappinn úr og...puuuuuðððððrrr,
jörðin þeytist eins og blaðra út í geim.
Tarna er ljóta.
Og húsfreyja búin að kaupa ALLAR þessar jólagjafir!
Meira að segja búin að skrifa og senda slatta af jólakortum.
Hvorki verið tími til að leggjast yfir lífsgátuna einu : HVER SKAPAÐI GUÐ?,
né finna skynsamleg svör við spurningum 11 ára djásnsins frá því fyrir
fimm árum:" Mamma, var GUÐ LENGI að skapa heiminn"? Og" mamma,
var HÚN Guð ekki ÞREYTT þegar hún skapaði allan heiminn"?
Allt óleyst hjá húsfreyju, svaravant og í hönk.
Allur tíminn farið í að finna fallegt og ódýrt skraut á jólapakkana,
sem ALDREI verða opnaðir, skápaþrif, gluggaþrif og vinnu.
Jæja.
Íbúðin húsfreyju verðu altént glansandi hrein,
þá hún mætir sínu skapadægri og fallega skreytt jólagjöfum sem
aðrir áttu að fá.
"VIÐ MUNUM ÖLL, VIÐ MUNUM ÖLL DEYJA", er gólað í fréttatíma
sjónvarps...og pláneta-X bak við sól að brjálast...ef hún er þá til...
og pólskiptin eru að koma eins og elding í hausinn á okkur...
og einhver hellingur af fólki er svo skynsamt að geyma jólagjafakaupin
til 22. des...sem að öllum líkindum...mögulega...nokkuð öruggt...svona
lætur að líkum...rennur ALDREI upp!
Svo segja skarpir heimsendaspámenn!
OG ÞEIR SNILLAR KLIKKA ALDREI!
Húsfreyja er armur og vesæll heimskingi sem trúir af bjartsýni
á framtíð með Jólum á því herrans ári 2012.
Óð í það eins og vitfirringur að kaupa jólagjafir...og verra:
SKRIFA JÓLAKORT!
Í það að BÍÐA rúma 8 tíma á slysó.
Og HEIMSENDI ekki á morgum heldur hinn.
Nei, húsfreyja stígur ekki í "heimsendavitið".
Mun skárra hefði verið að slá lán fyrir ferð í "kirkjugarðinn
á Tortola", og eyða 21. des á notalegu rölti á milli "nýtekinna grafa",
í sól og hita, á stuttbuxum og ermalausum bol, og drekka af stút
eðal rauðvín frá Frankaríki frá því 1998...(þegar jörðin átti enn einhverja
framtíð fyrir sér!)
Jamm, húsfreyja beygir höfuð sitt af skömm yfir fyrirhyggjuleysi sínu
og "heimsendakæruleysi"....
Væri svo alveg eftir henni að fá SLAG þann 20. des., steindrepast og missa
af öllu stuðinu þann 21.des.
SJÍSS! Fengi ekki einu sinni sómasamlega jarðarför...
Góðar stundir og njótið ykkar sem allra best þessa síðustu tvo daga jarðar....
en ef svo "ólíklega" vill til að ekki verði af heimsenda:
GLEÐILEG JÓL ÖLL SEM EITT!
Heimsendir eða hátíð? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Spaugilegt | Breytt 27.12.2012 kl. 17:09 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.