2.11.2012 | 17:11
Bévískur þotuhreyfill....
...í gangi inni á baði", hugsaði húsfreyja rasandi
þegar hún reis úr rekkju í morgunsárið.
Hávaðinn var ærandi, og versnaði um helming
þega húsfreyja kom fram úr svefnherbergi sínu.
Enda sat læðuræfillinn lúpulegur á gófinu fyrir framan
baðherbergið, eyrun þétt að höfðinu og starði örvæntingafull
á svefnuga húsfreyju og baðherbergisdyr til skiptis.
Inni á baðherbergi blés norðansvöl gola upp á
5 metra á sekúndu, á meðan 45 metrar á sekúndu geysuðu
í argvítans lofttúðunni, með djófulgangi og helvískum hvin.
Húsfreyja ræsti 11 ára djásnið, og þrælaði henni í skólann.
"Á ég að FARA í skólann í SVONA vondu veðri, mamma"?
Og síðan: "Má ég ekki vera heima í dag, mamma"?
GLÆTAN!
Húsfreyja og móðir 11 ára djásnsins var miskunnarlaus.
Enda alin upp í mesta rokrassgati litla Fróns....
Vestmannaeyjum fyrir gos.
"Bara smá vindur, gullið mitt, ég skutla þér í skólann"!
Djásnið sá að móðurinni varð eigi hnikað, dæsti mæðulega og hóf að
hlaða utan á sig hlýjum fötum.
Og upp í skóla ók húsfreyja djásni sínu.
Fékk að vísu míni slag, þegar vindhviða upp á 47 metra reif nærri
því bílhurð hennar af hjörunum úti á hennar eigin bílastæði,
og annað heldur stærra mínislag, þegar fílefldur karlmaður upp á 2 metra á hæð og á
að giska 97 kíló FAUK fram hjá henni eins og tuskudúkka,
með 10 ára dóttur í eftirdragi á skólalóðinni.
"Mamma, SKO, svo ertu að láta mig mæta í skólann", 11 ára djásnið
fullt vandlætingar.
Húsfreyja stóð FÖST fyrir, í báða fætur, hélt djásni sínu þétt að
hlið sér, og lét engan helvískan vindblástur frá Kára, ná
að svipta sér úr stað.
Tók Eyjapæjuna á rokgassann, skáskaut sér áfram og vatt
upp á sig eftir því hvernig vindurinn blés, svo hvergi náði Kári taki
á henni eða djásni.
Djásnið rasandi á því, hvernig lágvaxinni 64 kílóa móðurinni tókst að
snara þeim báðum að anddyri skólans, án þess að takast á loft,
eða fjúka tvist og bast líkt og fyrrnefndur faðir.
"VÁV, mamma"!
"Hva, þetta er nú bara smá gola" sagði húsfreyja og glotti til
foreldra sem stóðu móðir í anddyrinu, og höfðu fylgst með
"skólalóðahlaupi" húsfreyju með djásnið.
"Bára! Þú ert LIFANDI" hrópaði hrifin skólasystir djásnsins.
Húsfreyja kvaddi með hraði, og komst aftur áfallalaust að bifreið sinni
og heim.
Það móaði í dagsbirtu á austurhimni þegar húsfreyja kom heim,
enda klukkan að halla á hálf níu.
En þegar húsfreyja leit út um glugga sína til vesturs,
blasti við niðamyrkur.
Ja, hvur asskotinn?
Dagrenning austan en niðdimm nótt vestan?
Húsfreyja mændi út um glugga sína, snaraði sér síðan
út á dyrapall.
Neipp, hún var ekki komin með illvígan "vesturblindusjúkdóm",
heldur hafði salt og drulla í massavís lokað fyrir skjái hennar
til vesturs, svo hvergi sást út.
En vesturhiminn var langt frá því að vera bjartur...sei, sei nei.
Illvíg grásvört ský og þrútið loft.
Húsfreyja ákvað að fresta fótaferð með hraði,
snaraði sér inn í rúm sitt, og steinsofnaði von bráðar.
" Morgunstund gefur...blablabla...." alvitlaus málsháttur þetta.
"Morgunstund gefur væran svefn, örþreyttu vesturblindu fólki"
Mun betra.
Það var komið undir hádegi, þegar húsfreyju þóknaðist að opna augun aftur.
Þotuhreyflarnir á baðherberginu voru orðnir tveir, þegar húsfreyja
þvoði og þurrkaði hár sitt.
Læðan var horfin undir sófa, gjörsamlega eyrnalaus af angist og ótta.
Veðrið heldur að slá í, og albrjálað að gera hjá
slökkviliði og björgunarsveitum um allt land.
Húsfreyja sló af ferð á Landsspítalann á fræðsluerindi....
Sæbrautin ófær, Laugarvegur lokaður.
Frestaði einngi ferð í Bónus, bóndi náði í djásnið í skóla og
fóstursonur mætti veðurbarinn í heimsókn og mat.
Tengdó hringdi áhyggjufull yfir fréttum úr höfuðborginni.
"Væsir ekki um okkur, innandyra, fyrir utan djö... þotuhreyflana
inni á baði og mjög takmarkað útsýni til vesturs".
Tengdó hress í snjóbyl fyrir norðan.
Jamm, ekki afleitt að vera í fríi í svona norðanáhlaupi.
En húsfreyja ætlar að bjalla í systur sína í Þolló.
Systir skrapp nefnilega í SUMARbústað fyrir helgi.....
... jepp, ÚT Í EYJAR!
Húsfreyja spáir "þokkalega góðum blæstri" á sumarbústaðarferð
systur....kannski svona 60-80 metrum í bestu vindhviðum Kára.
Góðar stundir og megi allir ykkar "þokuhreyflar" hljóðna þá kvölda tekur
og vesturgluggar hreinir verða.
Sjósund í ísköldum norðangarra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Spaugilegt | Breytt 7.11.2012 kl. 19:09 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.