17.10.2011 | 17:39
Landamæragæsla?
Húsfreyja er Rati, með stóru erri.
Sjálfsagt búin að skíta upp á bak árum saman. Í landafræði!
Veit minna en ekki neitt um land sitt og mörk/"landamæri" þess.
Er búin að telja sjálfri sér trú um það árum saman,
að litla Frón sé eyríki, og hafi því engin eiginleg
"landamæri" við önnur lönd, nema ef vera skyldi að
til væru "hafmæri" eða "sjávarmæri".
Hefur jafnvel talið að LANGT væri til annarra landa
héðan frá Litla Fróni, svo einungis væru færar
tvær"útgönguleiðir" af landinu, ergo, með skipi eða
flugvél.
En neipp, húsfreyja veður í villu og svima, að vanda.
Hér eru sjálfsagt búin að vera til "landamæri" árum saman
upp á litla Fróni með myljandi "landamæragæslu".
Ja, hvurn árann.
Allt farið fram hjá húsfreyju.
Hreinlega stígur ekki í vitið, konan.
Veit ekkert í sinn haus.
Veit minna en Jack Nicholson í "One Flew Over The Cookos Nest",
eftir heilaaðgerð.
Jaso.
Tarna er ekki gott afspurnar.
Húsfreyja mun nú leggjast yfir gömlu Landafræðiskrudduna
sína, og lesa af hörku.
Lágmark að hún viti "hvaða lönd" liggja að litla Fróni og deila þannig með því
"landamærum".
Væri rosalegt ef húsfreyja hefði misst af því, að hafa
samliggjandi landamæri við Ameríku.
Hehehe...stóðst ekki mátið, húsfreyja.
Kitlaði "meinlegu taugina" í húsfreyju, frétt þessi.
Fáum kannski fregnir af flóttatilraun yfir "landamærin" upp á litla Fróni
í kvöld á Stöð tvö.
Góðar stundir.
Hert landamæragæsla eftir rán | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 20:20 | Facebook
Athugasemdir
Inngöngustaðir í lönd kallast landamærastöðvar, það er svo önnur ella hvort þú kemst fótgangandi eða eftir öðrum leiðum að þeim stöðum.
Karl J. (IP-tala skráð) 18.10.2011 kl. 09:14
Þakka þér þetta, Karl. Jú vissulega renndi mig í grun, að búið væri að "skíra" inngöngustaði landa einhverju nafni, eins og landamærastöð/stöðvar, en breytir ekki því að orðið landamæri útleggst sem mörk milli tveggja ríkja eða lína sem skilur að lönd. Fannst þetta myljandi gott tækifæri, til að fá útrás fyrir meinlega gríngenið mitt, fyrst litla Frón er enn eftir því ég best veit, EYRÍKI, án nokkurra landamæra við önnur lönd. Þakka þér kærlega innlitið.
Sigríður Sigurðardóttir, 19.10.2011 kl. 16:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.