27.4.2011 | 21:01
Hehehe...misheppnaðir karlar í kálhausavanda!
Þetta mætti túlka sem svo að hér á
jörðu væri algjörlega "öfugsnúið" mannkyn.
Eða bara hreinlega SAMKYNHNEIGT!
Hommar allt saman!
Allir sem einn!
Allt fullt af körlum skotnum í "misheppnuðum" körlum,
og flestir hinir misheppnuðu karlarnir hommar sömuleiðis!
Skotnir í körlum.
Hehehe...kitlaði hláturtaugina húsfreyju, frétt þessi.
Sér hún fyrir sér heilu hersveitirnar af "mislukkuðum" körlum
í "kálhausaræktinni" sitjandi dag og nótt á salerninu,
símígandi, á meðan gæludýr allra heimila eru dauðans
matur og "greftruð" í akkorði í dýrakirkjugörðum á 28 daga fresti
þá "misheppnuðu" karlarnir á heimilinu eru á blæðingum.
Hehehehe...gaman að þessu.
En það telur húsfreyja næsta víst,
að heldur viti karlmenn meira um konur sínar í dag,
en Albertus Magnus þessi....
altént nóg til að þurfa ekki að DREPA þær.
Góðar stundir og verði ykkur "sumarkálið" að góðu.
Konur séu misheppnaðir karlar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 21:05 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.