26.4.2011 | 19:02
Blóðglundur í glasi...
..aldeilis eitthvað, sem
þörf er á að blessa, á
þessum síðustu og verstu tímum.
Svo segir hans háæruverðugi heilagleiki,
Benedikt, sá sextándi í Róm.
Þar með gutlinu úr sáluðum páfa,
elskulegum Jóhannesi Páli, komið
fyrir meðal allra hauskúpanna af Jóhannesi
skírara, krossaflísum þess frá Nasaret upp á
nokkur tonn og ekki má gleyma BLESSUÐUM nýfundnu
"nöglunum" sem brúkaðir voru til að
negla upp Nasaretann,
sem einhver snjall kvikmyndagerðamaður
datt oná í Ísrael nú á dögunum.
HELGIR DÓMAR!
HALLELÚJA!
Hvorki meira né minna.
Jamm, orðinn að "dýrðlingi" blessaður
sálaði pólverjinn, sem gengdi störfum páfa
á efri árum, ferðaðist grimmt um allar trissur,
komst jafnvel í það að smella kossi á "malbikið"
á flugbrautinni inn í henni Keflavík okkar Frónbúanna.
Hefur sjálfsagt skilið eftir á malbiksbút þessum
munnvatn sitt og svita sá dýrðlegi páfi,
okkur Frónbúum til dýrðar og heilla.
Og svona líka rosalega "heilagir" líkamsvessar að
leka niður á frónverskt malbik, að það hálfa væri nóg.
Húsfreyju finnst nú kjörið tækifæri, að koma
vel "páfakysstu malbiki" þessu í verð, og bjóða
þeim sextánda að kaupa og koma fyrir í
sölum sínum innan um aðra "helga dóma".
Ekki mikið mál að finna nákvæmlega,
hvar "sá dýrðlegi" hné niður á kné sín á frónversku
malbiki, hér um árið, (sjálfsagt sjálflýsandi míní-
GEISLABAUGUR á sveimi fyrir ofan þann helga stað)
skella loftpressunni á blettinn og mæla út,
(10x10x10 t.d), ná upp í heilu lagi og
senda þeim sextánda í ábyrgðarpósti.
Rukka heilagleikann hóflega fyrir "helga dóminn",
200 þúsund kall á hvern centimetra eða svo.
Myndi aldeilis sóma sér vel, grásvart frónverskt
malbikið innan um morknaðar hauskúpur, blóðglundur í glösum og
ryðgaða nagla þarna austur í Róm.
Ekki spurning.
En matur næst á heimili húsfreyju;
Átti ég forðum áform glæst
eina von sem ei gat ræst.
En nú er sú mín hugsjón hæst
hvenær verður étið næst.
(Húsfreyja veit ekki höf.)
Góðar og "helgar" stundir í Páskalok.
Blóð úr páfa helgað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Trúmál | Aukaflokkur: Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 21:20 | Facebook
Athugasemdir
alveg ljómandi færsla hjá þér.............
Eyþór Örn Óskarsson, 27.4.2011 kl. 00:21
Þakka þér Eyþór, ég er farin að ímynda mér að sá sextándi sé einn af skemmtilegustu trúarleiðtogum þessa heims...uppfullur af myljandi fínum hugmyndum.
Sigríður Sigurðardóttir, 27.4.2011 kl. 21:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.