Flaut ekki upp?

  dzn_Harpa-Reykjav%C3%ADk-Concert-Hall-and-Conference-Centre-6Fleiri, fleiri tonn af steypu og járni?

  Átti það að geta flotið upp, blessað

  bráðnauðsynlega tónlistarhúsið okkar,

  Frónbúanna?

  Og hvað?

  Þá hægt að "sigla" því?

  Koma í staðinn fyrir Herjólf, máske?

  Senda það í siglingar milli lands og EyjaDevil?

  Eða átti það að geta dólað hringinn í kringum

  landið, með tónleika á nýjum áfangastað á hverju kvöldiGrin?

  "Hringleikahús með tónlistarlegu ívafi"Whistling?

  Hehehehe...stóðst ekki mátið, HúsfreyjaLoL.

  Gerir sér fulla grein fyrir þeirri miklu áskorun byggingaraðila, að

  reisa heilt tónlistarhús út í sjó.

  Hægt að lenda í allt öðrum málum, en þá byggt er á þurru landi.

  En byggingasmiðir okkar Frónbúa bísna snjallir, og þeim ekki fisjað

  saman..... þó að þurfi að rífa niður einhvern helvískan haug af

  stáli af og til vegna galla, og setja síðan upp nýtt betra,

  hvað er það?

  Fara létt með slíkt.

  Svo er annað mál, hvort brýn þörf hafi verið á

  þessari miklu tónlistarhöll hér úti í miðju

  ballarahafi, þegar kreppa og bankahrun herjar á,

  og kostar orðið meira en að reka bíl í ár, að koma börnum

  sínum í tónlistarmenntun?

  Stefnir allt í það að tónlistarmönnum okkar Frónbúa muni

  fækka á komandi árum, og þeir muni jafnvel verða sjaldgæfari en

  lundinn EyjamannaErrm.

  Það líst húsfreyju illa á, því hún telur fallega tónlist næringu fyrir

  sálina.

  En svo má ekki gleyma að blessuð stálgrindahöllin er

  einnig ætluð í ráðstefnuhald.

  Það væri þá ráð að demba sér í þrotlaust ráðstefnuhald á

  árum komanda.

  Halda 3-6 á dag LÁGMARK, Jól og Páskar ekki undanskilin

  og hafa þá einn herlegan logarauðan söfnunarbauk

  í andyrinu, vel merktan þurfandi og fátækum tónlistarmönnum

  á vonarvöl með hæfileika sína og listWhistling.

  Muna bara að merkja hann kyrfilega:

  NO ICELANDIC KRÓNAS, PLEASE!

  ONLY EUROS, DOLLARS OR POUNDSDevil!

  Ef í hart færi, og illa gengi að safna í baukinn,

  mætti bæta við:

  PAY OR WE'LL PLAY....ALL DAYTounge!

  En gleði að blessuð tónlistarmerkta stálhöllin skyldi

  ekki fljóta á haf út, og enn meiri bullandi hamingja að hún

  skyldi ekki leka.

  Þeir tónlistarmenn sem þrauka kreppuna á litla Fróni,

  geta þá aldeilis slegið um sig í tónleikahaldi í HÖRPU um öll

  ókomin ár..... séu þá ekki allir salir uppteknir af ráðstefnuhaldiWhistling!

  Húsfreyja óskar tónlistarfólki öllu velfarnaðar,

  óskar því til hamingju með nýja tónlistarhúsið.

  Megi þeir vel njóta...og við hin tónlistarinnar. 

  Góðar stundir.


mbl.is Harpa reyndist pottþétt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Jón Steinar Ragnarsson, 11.4.2011 kl. 18:43

2 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Já held að það sé best að hafa fyrirbærið bara neðansjávar:):)
Af hverju var húsið ekki skírt IceSave:):):)???
Skemmtilegur pistill hjá þér:):)
Kveðja.

Halldór Jóhannsson, 12.4.2011 kl. 06:37

3 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Þakka ykkur herramenn.  Já, þetta verður hin merkasta bygging þegar fram í sækir, og sagan að baki henni ekki síður.  Datt í hug hvort við ættum svo ekki að splæsa í eina risastóra styttu við sjávarhlið hennar svona í leiðinni...svona ala Frelsisstyttan í New York.  Mætti vera risastór "blá hönd" eða "Icesafe-bolli... býttar ekki öllu...nema að stytturæsknið yrði að vera "SJÁLFLÝSANDI"...helst bjartara en sól í heiði á júnímorgni

  Kveðja S.S

Sigríður Sigurðardóttir, 12.4.2011 kl. 18:02

4 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Jú,við ÞJÓÐIN stöndum saman og gerum þetta...Skárra væri það nú eftir NEI-ið um helgina:):):)

Halldór Jóhannsson, 13.4.2011 kl. 06:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband