1.4.2011 | 22:44
Þrælar Hjörleifs....
...að trufla mokstur í Landeyjahöfn?
Altént beinahrönglið þeirra.
Jaso, og húsfreyja sem hélt að þeir þrælar hefðu
flestir ef ekki allir flúið í Eyjar út og "Ingó fyrsti"
landnámsmaður murkað úr þeim líftóruna
seinna meir, með sínu liði.
Svo eru þeir bara að svamla um í Landeyjahöfn
tólf hundruð árum seinna, og skapa Herjólfi, eðalferju,
tjón, tjöru og ekkisens vandræði.
SJÍSS.
Ekki að furða, að Herjólfi gangi illa að komast inn í
Landeyjahöfn!
Hún er full af MANNABEINUM!
Andskotinn í grásúrri ostasósu!
JARÐA þrælmeninn hið SNARASTA!
Kalla til "allsherjargoðann" og fá hann til að
rusla lýð þessum í "heiðinn haug", svo Herjólfur
fái silgt í friði og andaktugri spekt inn í sína
Landeyjahöfn.
Svo eru menn að kenna Eyjafjallajökli með sína smá
gosspýju um að spilla siglingu inn í Landeyjahöfn.
Og "smáfljótinu" Markarfljóti með eitthvert tutl af sandi.
Ja svei!
Fúlir "Hjörleifsmyrðandi" þrælar eiga hér greinilega alla sök,
og til vansa að Herjólfur skuli hafa þurft að sigla
í "þrælslegu beinahröngli" mánuðum saman.
Hefði strax verið mun skárra, ef þarna hefðu verið
eðal "víkingabein" á ferð nú eða beinahröngl af pöpum.
Hehehehe.....Fyrsti apríl er ágætis dagur.
Góðar stundir.
Fornleifar í Landeyjahöfn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 23:02 | Facebook
Athugasemdir
Sigrún Óskars, 3.4.2011 kl. 11:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.