Örvasa ríkisbubbar á bótum?

atypic  Duga skammt 100 millurnar hjá

  suddalega moldríku fólki þessu,

  fyrst það ÞARF atvinnuleysisbætur í ofanálagW00t.

  Húsfreyja yrði að fá mjög NÁKVÆMAR leiðbeiningar

  ætti hún að eyða 100 milljónum sisona,

  og yrði sjálfsagt að fá að spenna slíkri upphæð

  á nokkrum árumShocking ...... nema auðvitað hún smellti sér með "aurana"

  til Las Vegas með Ödda og Gillz á morgunTounge.... væri fljót að

  snara út aurunum, og sjálfsagt komin heim slypp og snauð

  fyrir hádegi á þriðjudagUndecided.

  Ekki heppin kona í spilum, húsfreyja, og hefur tvívegis

  fengir "skammarverðlaun" í félagsvist um ævinaWhistling......

  og þrisvar tekið þátt í félagsvistGrin.

  Merkilegt samt að þokkalega "vel stæðu" fólki þessu

  þyki það hafa þörf fyrir atvinnuleysisbæturErrm.

  Í hvað notar fólk þetta fé sitt, þessar 100 milljónir,

  ef ekki til að greiða af lánum, kaupa í matinn, borga rafmagn

  og hita, borga bensín, kosta börn sín í skóla og borga símreikningana?

  Allt í einu bara "skítblankt" og atvinnulaust lið,

  með sínar 100 millur, að missa ofan af sér, verið að loka fyrir rafmagnið,

  krakkarnir að hætta í framhaldsskólum og á ekki fyrir

  flösku af Sjardonney með kvöldmatnum á fimmtudegi.......nema

  það fái greiddar atvinnuleysisbæturShocking.

  Allir peningar húsfreyju hafa hingað til farið í húsnæði, barn og bíl,

  enda hefur hún ALDREI átt 100 milljónir, MUN líklega aldrei

  eignast hundrað milljónir, né heldur mun hún ÞURFA

  100 milljónir til að lifa ágætlega sómasamlegu lífiHalo.

  Nær meira að segja að styrkja líknar-og styrktarfélög

  sjúkra og ógæfufólks tvisvar til fjórum sinnum á ári,

  án þess að sleppa Kit-Kattinu og sölinni í staðinnJoyful.

  Er húsfreyja meira að segja búin að splæsa á sig einni Sjardonney

  þetta árið, þá hún fór í óvissuferðWhistling!

  Jamm, ólíkt höfumst við að, þrjúþúsundsexhundruþrjátíu og tvö-mennin

  og svo allur þorri þjóðarinnar, á krepputímum.

  Þorrinn kreppir hnefann og skekur upp í andlit kreppustormsins og

  rær lífróður á þjóðarskútunni fyrir að meðaltali 150-350 þúsund krónur

  á mánuði svo börnin okkar,

  næsta kynslóð megi lifa þokkalega mannsæmandi lífi.

  Hundrað milljón króna fólkið sér sóma sinn í því að sækja

  um bætur verði það atvinnulaustPinch.

  Jamm, tarna er furðuleg mannskepna, hundrað milljón króna maðurinnW00t.

  Er kannski 100 milljóna fólk þetta af "nykurættum"

  ....nykursins í Reykjavíkurtjörn eft til villDevil.

  Hvað veit húsfreyja?

  Ekki baun.

  Góðar stundir, og húsfreyja lætur vita, finni hún  vísbendingar

  á förnum vegi um "hvernig á að eyða 100 milljónum"Cool!


mbl.is 3.632 eiga 750 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Snilld! En húsfreyja þarf að kynnast honum Bjögga, hann kann skil á þessum málum öllum... :)

Kolbrún Hilmars, 21.10.2010 kl. 18:32

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Þakka þér kærlega Kolbrún.  Já, ef Bjöggi kann á þessu góð skil, þá má hann alveg bjalla í mig.

Sigríður Sigurðardóttir, 22.10.2010 kl. 13:33

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Sigríður, þarf ekki símann til, hann Bjöggi er vís til þess að líta við hjá þér líka

Ef ekki, þá hefur hann óspart tjáð sig bæði á minni síðu og Ingunnar í tengslum við þessa sömu frétt...

Kolbrún Hilmars, 22.10.2010 kl. 17:24

4 Smámynd: Sigrún Óskars

kollega - allt satt og rétt hjá þér. En hvernig getur fólk verið svona siðlaust ??

Annars gætir þú eytt 100 milljónum bara fyrir hádegi - þetta er eitt hús, tveir nýjir bílar og sjardonney fyrir afganginn

Sigrún Óskars, 22.10.2010 kl. 23:14

5 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Þakka þér kollega....jamm líklega gæti ég reddað þessum 100 milljónum á einum morgni, ef ég væri ekki svona asskoti "hagnýt" í þankagangi......"ummm... hugsa-hugsa-hugsa...þarf ég 2 nýja bíla..öööö... nei líklega dugir mér einn.. þarf ég eitt stykki hús....það væri nú kannski grand...  en þá þarf ég að þrífa tvöfalt meira en áður...ööö... á asskoti fína og þægilega íbúð.. sleppum húsinu þá... fínt að fá einn lítinn sætan sumarbústað ístaðinn í Kjósinni".... og sæti svo uppi með 60 millur, hausinn tóman, hugmyndasnauðan og endaði með því að gefafátækum 30 millur og setja rest á bankab... eða NEI!  Setti restina inn í koddaverið mitt og undir dýnuna...

Sigríður Sigurðardóttir, 27.10.2010 kl. 20:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband