19.10.2010 | 18:59
Óáttađar öldur.
Húsfreyja hefur ekki heyrt áđur af
"óvenjulegum ölduáttum"!
Er jafnvel ekki alveg örugg á ţví ađ hún
viti hvađa fyrirbćri ţetta sé.
Rekur bara alls ekki minni til ţess ađ hafa
heyrt veđurspaka menn í Eyjum rćđa um
"ölduátt" eđa "ölduáttir".... nema ţetta eigi ađ
vera "ölduáttur"....samanber spađaáttur!?
Nei, varla.
Hins vegar man húsfreyja vel eftir "ölduróti", "ölduhćđ", "ölduhnútum"
"ölduriđi", "öldurisi", "öldukasti", "ölduskít" og "ölduskafl"
í daglegu tali sćfara sem annara Eyjamanna hér í den.
Nú og svo var rćtt um öldunga, öldurhús og öldustokka
og menn voru öldungis rasandi hissa á óđaverđbólgunni,
bítlamúsíkinni, nýjum leiđum í menntunarmálum s.s. öldungardeildum.
Jamm.
En kexruglađar öldur úr "óvenjulegum ölduáttum" voru
lítt rćddar í Eyjum bernsku húsfreyju.....eđa aldrei.
Hélt reyndar, húsfreyja ađ "allar áttir" á hafi úti
vćru "venjulegar ölduáttir", fćri svona eftir ţví
hvernig og hvađan vindar blésu.
Já, húsfreyja er öldungis rasandi hlessa á
villuráfandi öldum ţessum, sem hafa valiđ ađ
róta sér í óvenjulega átt...beina leiđ inn í Landeyjarhöfn.
Og ţađ međ heilu helvítis tonnin af rammvilltum sandi
sem ferđafélaga í ţokkabót.
Enda sér ţađ hver heilvita mađur ađ öldurót mettađ
sandgruggi er nćsta fáheyrt og fáséđ á ţessum slóđum...
samanber "Landeyjasandur"....eđa nei...viđ skulum láta
ţetta liggja milli hluta.
Altént eru öldurnar algjörlega á "rangri leiđ", og eiga ekkert međ
ţađ ađ burđast međ allan ţennan sand inn í Landeyjahöfn.
Anskotinn í gallsúrri mysu.
Ekki lítur ţetta gćfulega út fyrir Eyjamenn sem ađra
farţega Herjólfs.
Nái náttúran ekki ađ vinda áttavillu ţessari ofan
af "reiđuleysis-rápandi" öldum sínum á hafi úti, og koma ţeim í farveg jafnvćgis
og "venjulegra ölduátta", er nćsta víst ađ hugmynd
húsfreyju um "hrísgrjónaakur" í Landeyjahöfn verđi bara öldungis
ekki algalin!
Öldungis ekki.
En nóg ađ sinni.
Kvöldmatur nćst.
Góđar stundir og vonandi koma allar ykkar öldur ađ landi
úr "venjulegum" ölduáttum.
Töfin í Landeyjahöfn tímabundiđ ástand | |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.