11.10.2010 | 19:26
Hoppandi, rasandi ćst.
Húsfreyja er alveg bandsjóđandi
tjúlluđ og ćst í skapinu ţessa dagana.
Hún blánar, rođnar og hvítnar á víxl,
bölvar á mergjađri íslensku, fer međ
hrođalegar bölbćnir á Latínu og
illgjarnar sćringar á háţýsku.
Kötturinn lćđist lúpulegur um,
varla ađ hann mjavri ţegar húsfreyja svíkur hann
um harđfiskinn 3 daga í röđ.
Gjóar vondaufum augum á "tvífćttu hárlausu" ţjónustuna sína,
geispar ógurlega, sleikir loppu sína fagmannlega og kveđur
upp sinn dóm: "Jepp! Gjörsamlega búin ađ tapa sér, frúin"!
Röltir til níu ára djásnsins, nuggar sér upp viđ hana og
mjavrar vinalega: "Svona nú, ţetta var ekki djúp klórskráma
frá mér í gćr, gefđu nú kisu ţinni LIFRAKĆFU hróiđ mitt,
og ég skal hafa klóriđ enn GRYNNRA nćst".
Djásniđ lítur á móđur sína međ furđu í svip sínum:
"Gafstu Bröndu ekkert ađ éta í morgum, mamma"?
"Ég á ekki köttinn" urrar húsfreyja.
Og djásni rennur blóđiđ til skyldunnar og reddar ketti
sínum lifrakćfu og vatni.
En húsfreyja er illilega, rasandi bálvond..man ekki einu sinni
eftir ađ kaupa inn harđfisk, svo heitt er henni í hamsi.
Og hvađ veldur?
Jú, séníin í Heilbrigđismálaráđuneytinu okkar Frónbúanna.
Var helvísk kreppan ekki nógu slćm án ţess ađ
niđurskurđarsnilld ţeirra nyti viđ?
Argvítans bankahruniđ međ kerlingarfáluna hana Ísbjörgu
nartandi í hćlana á banakeigendunum, bara nóg vesen
ţó snillarnir í Heilbrigđisráđuneytinu sćtu á sér?
Útrásarfíflin á Tortóla, nóg til ađ sprengja blóđţrýstinginn
hjá hverjum heiđvirđum Frónbúa, sem mćnir vongóđur
á eina "góđćrisgróđa sinn" flatskjáinn, hvert kvöld í von um
sanngjarnar lausnir, skjaldborg og mannúđlegan niđurskurđ
á tímum kreppu?
En sei sei nei!
Ráđist á aldrađa, fatlađa, sjúka, barnafólk og verđandi
foreldra!
SKERA NIĐUR!
Og nú í heilbrigđisţjónustunni úti á landi!
Ţađ er eins og fjandinn sjálfur hafi birst ţeim
í Heilbrigđisráđuneytinu međ tillögur:
1. LOKA öllum fćđingardeildum
landsbyggđarinnar, máski gott ráđ
ađ senda alla frjóa karla er kjósa ađ búa utan malar,
í "binda fyrir spottann"-ađgerđ á nćstu mánuđum
og konur á barnsburđaraldri allar í "tappa-ísetningu"!
Ţangađ til er rétt ađ fram komi:
Helmingur ţjóđarinnar skal eftirleiđis fćđast
í flugvélum, ţyrlum, skipum, í bílum á ţjóđvegi 1, og
stöku sjúkrabíl......
á LEIĐINNI á fćđingardeildina í höfuđborginni
viđ sundin bláu.
Eyjamenn verđa ţannig ekki lengur Eyjamenn,
heldur "Milli-lands-og-Eyja-menn",
Borgfirđingar verđa "Hvalfjarđagangna-menn",
Húsvíkingar "Víkurskarđs-menn",
og Selfyssingar, Hvergerđingar og Ţorlákshafnarbúar
ásamt öđrum Suđurlandsbúum verđa ađ sjálfsögđu
"Litlu Kaffistofu-búar"....osfr.
Vegna ónćđis af fćđandi konum á Litlu Kaffistofunni
mćtti taka karlasalerniđ og útbúa ţar "míní-fćđingarskýli".
Móarnir ţar um kring hressast bara af smá hlandi
frá karlkyns bílstjórum í spreng.
2. LOKA skal sem flestum skurđstofum úti á landi.
Ţar međ eru öll "bráđaveikindi" s.s sprungnir
botnlangar, innvortis blćđingar, massív hjartáföll
eđa heilablćđingar BÖNNUĐ á landsbyggđinni....
altént MJÖG illa séđ...og í raun bara tómt VESEN....
hvađ vill hundveikt pakk upp á dekk úti á landi...?....
getur bara skammast til ţess ađ flytja í borgina
viđ sundin bláu...og BEĐIĐ á bráđamóttökum
Landsspítla Háskólasjúkrahúss eins og ađrir
fárveikir borgarbúar, eftir ţjónustu.
Og svo dettur húsfreyju í hug ađ ţriđja tillagan hafi einnig
veriđ sett fram af kölska, og rćdd í Heilbrigđisráđuneytinu:
3. Stefnt verđur ađ algjöru "fćđingarstoppi"
úti á landi fyrir 2014 og "sjúkdómalausri" landsbyggđ
eigi síđar en 2017....og gamlingjar og fatlađir
er landsbyggđina búa, skulu allir fluttir út í Viđey,
og munu ţeir eftirleiđis annast allt viđhald á friđarsúlu
Lennons, og annast móttöku Yoko Ono ár hvert!
Og ţađ ţó ađ ţađ ţýđi, ađ eftirleiđis búi ađeins
20 - 70 manns úti á landi nćsta mannsaldurinn,
í hverju byggđarlagi.
Jamm, húsfreyja er rasandi bálill og nćr vart upp á nef sér
af vonsku.
Kannski skást ađ gera stólpagrín ađ öllu saman.
En góđar stundir og í guđanna bćnum gćtiđ heilsunnar.....ef
ţú ert ólétt kona úti á landi...vá, ert ţú í djúpum...!
Flokkur: Heilbrigđismál | Breytt s.d. kl. 20:52 | Facebook
Athugasemdir
ÓMG kollega - mín sem sagt alveg búin ađ fá nóg !! ekkert skrítiđ miđađ viđ tillögur ríkisstjórnarinnar.
Mér finnst ţínar tillögur heiđarlegri - ţetta eru ađ vísu "sömu" tillögur, ţínar eru bara á mannamáli.
Sigrún Óskars, 14.10.2010 kl. 16:12
Jamm, ţetta eru ţokkaleg skilabođ, sem landsbyggđarfólk fćr frá Heilbrigđisráđuneytinu ţessa dagana....og ekkert pćlt í afleiđingum!
Sigríđur Sigurđardóttir, 19.10.2010 kl. 16:50
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.