25.9.2010 | 22:38
Korter yfir sjö....?
Húsfreyja var rasandi.
"Þið eruð að grínast, er það ekki"?
Nei, ekki aldeilis.
Móðir húsfreyju og vinkonur hennar tvær héldu
fast við sinn keip.
"Rútan fer daglega frá Þorlákshöfn kl:07:15
til Reykjavíkur"!
"Ég gæti grátið", sagði hávaxnari vinkonan,
"ég er bíllaus, og ég sé mig ekki berjast í myrkri, snjókomu
og hálku niður í sjoppu, fyrir klukkan sjö á morgnana,
til þess eins að sitja svo í ruma tvo klukkutíma á BSÍ
með ógæfumönnum borgarinnar, bíðandi þess að
verslanir opni".
"Nú, maður hættir bara að skreppa til Reykjavíkur"
sagði lágvaxnari vinkonan, sem einnig er bíllaus.
"Ekki svo gott, ef maður á tíma hjá lækni í höfuðborginni"
svaraði sú hávaxna, "eins og ég þarf 5-6 sinnum á ári".
Húsfreyja blandaði sér aftur í umræðuna: "Og hvenær í
ósköpunum fer þá rútan aftur austur", spurði hún þær stöllur.
Annað hvort kl. fjögur eða fimm um eftirmiðdaginn, kom svarið.
Jaso!
Þær stöllurnar þrjár drúptu höfði bugaðar af þrá eftir
Herjólfsrútunni, og einstaklega heppilegri áætlun hennar.
"En kannski getur maður reynt að taka með sér prjóna
á BSÍ" sagði sú hávaxna dauflega.
"Nú það er ekki algalið, svaraði húsfreyja að bragði,
hægt að fara fram á að komið verði upp "prjónahorni" fyrir
búðabíðandi dömur á óræðum bíllausum aldri".
Mútta og vinkonur brostu dauflega.
"Við verðum sjálfsagt fyrir ógæfumönnunum"!
Húsfreyja varð hugsi 2 sekúndur.
"Nú það má alltaf fara fram á að BSÍ verði skipt niður í horn,
"MATARHORN, PRJÓNAHORN, SPILAHORN og RÓNAHORN"!
"Og þetta rímar meira að segja
Nú hlógu stöllurnar þrjár.
"Bara hægt að skella ferðamannabransanum og miðasölunni
í tjaldbúðir fyrir utan " hélt húsfreyja áfram.
Svo seljið þið bara afraksturinn af prjónamennskunni,
lopapeysur og sokka, í stórum stíl á sérlegum
"prjónamarkaði" rétt fyrir jólin og græðið grimmt"!
Aftur hlegið dátt, en eigi að síður varð loka niðurstaðan
sú að mun skárra hefði verið að fara kl: 8 eða 10 á morgnana
með rútunni.
Merkilegar samgöngur þetta við eina af stærstu verstöðum
Suðurlands....
Jamm, en húsfreyju datt í hug ef einhver af
útrásarliðinu ætti sem sosum eina þyrlu læsta inni
í leynilegri geymslu við eitthverja rauðsletta smáhöllina,
þá gætu máske yfirvöld snuðrað hana uppi,
gert hana upptæka, og síðan sent relluna tvisvar í viku til Þorlákshafnar
og flogið með vinkonur múttu, eldri borgara þorpsins, bíllausa á besta aldri
og bíllausa unglinga í skottúra í höfuðborgina við sundin bláu.
Gætu jafnvel flogið einn aukatúr í jólagjafavesen í desember.
Húsfreyja var á ferðinni í Þorlákshöfn með níu ára djásninu
í regninu og rokinu í dag.
Einkennileg bleikrauð birta í kringum Bláfjöllin þar sem
sólin reyndi að skína í gegn.
Samt ekki eins einkennileg og einn morguninn í vikunni,
þegar húsfreyja leit út um eldhúsgluggann, og
breið regnbogasúla sem náði frá hafi og upp
í grábláa skýjahuluna, blasti við sjónum hennar.
Hægra megin við súluna, nokkru fjær var örlítið daufari regnbogakúla,
svona eins og punktur yfir "i-ið"!
Við lá að húsfreyja yrði of sein til vinnu svo fallegt
var út að líta.
Kom samt djásni af stað í skólann og sjálfri sér í vinnu.
Töff ástand í vinnunni um þessar mundir hjá húsfreyju,
og margt í gangi sem dregur úr starfsánægju starfsfólks.
Ekki síst hjúkrunarfræðinga.
Vinnum ábyrgðarstörf, sem okkur finnast lítils metin.
Barátta framundan.
En nóg að sinni.
Góða nótt og góðar stundir.
Athugasemdir
margt sem dregur úr starfsánægju starfsfólks - ég bara spyr: hvenær hefur þessi vinnustaður reynt að auka starfsánægju starfsfólksins? Við eigum bara að vera heppin að hafa vinnu !! Reglulega er talað um að "kannski" þurfi að fækka fólki - allir verða hræddir og halda sér á mottunni.
Hvað mundi vinnustaðurinn gera ef hjúkrunarfræðingar berðu í borðið og segðu: Hingað og ekki lengra ?? Starfsemin mundi lognast út af - ....... kannski yrði bara heilmikill sparnaður í því.
Það er kannski best að halda sér á mottunni
Sigrún Óskars, 26.9.2010 kl. 10:25
Jamm, ég er sko aldeilis búin að vera foxvond síðustu daga kollega, og við erum komnar af stað með "ANDSPYRNU"...enda segir breskurinn að við séum terroristar....og allt í lagi að láta reyna á "stál við stál"-aðferðina af og til....ef svona mikið er til af atvinnulausum hjúkkum sem vilja vinna fyrir slikk...þá FÍNT....en maður verður bara ekkert var við þær neins staðar!
Sigríður Sigurðardóttir, 26.9.2010 kl. 13:15
Og við höldum okkur ALLS STAÐAR ANNARS STAÐAR en á mottunni.....
Sigríður Sigurðardóttir, 26.9.2010 kl. 13:16
talandi um atvinnulausar hjúkkur - það er kannski ekki eins auðvelt að fá vinnu og var, en hjúkkur fá vinnu.
Nú verða hjúkkur að berja í borðið (stálborðið) og standa saman !!
Sigrún Óskars, 26.9.2010 kl. 13:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.