Að marka spor...

Vesturhópsvatn ág. 2009100  ...í EIGIÐ LÍF,

  er snúnara en margur hyggur.

  Hvað stendur til dæmis upp úr

  síðustu viku?

  Eru það "utankomandi" atburðir eins og

  glæsilegt mark í fótbolta, hæstaréttardómur

  um gengislán eða yfirlýsing "alþjóðlegra vísra manna"

  um kreppulok.

  En hvað með ÞIG?

  Þínar gjörðir og upplifanir?

  Er hver dagur kannski öðrum líkur?

  Fylgirðu straumnum ómeðvitað/meðvitað?

  Og dagar, vikur, mánuðir og jafnvel ár líða

  án þess að ÞÚ markir eitt einasta spor á eigið líf?

  Og árin hverfa eitt af öðru Í ÓMINNIÐ!

  MANST ÞÚ hvenær ÞÚ umbyltir þínu lífi síðast?

  MANST ÞÚ hvenær þú tókst ákvörðun síðast,

  sem varð þér og ástvinum/vinum þínum til góðs?

  MANST ÞÚ hvenær lífið var síðast ljúft og þægilegt í marga daga,

  jafnvel vikur, mánuði ár og þú varst sáttur við Guð og menn?

  Hvenær það var ömurlegt, erfitt og sárt síðast...og ÞÚ vannst

  þig út úr myrkrinu einn og óstuddur...eða með hjálp góðra manna?

  MANST ÞÚ hvenær þú varst virkilega GLAÐUR síðast?

  Stoltur?

  Dapur?

  Reiður?

  Sáttur?

  Að UPPLIFA lífið og atburðarás þess í tætlur?

  Áttu kannski minningu um hafsjó af "sporum" sem þú hefur

  markað á þitt eigið líf?

  Hefur þér ef til vill dottið í hug að skrá niður "sporin" þín?

  Segja frá því hvernig ÞÚ markaðir "sporin" í þitt líf?

  Fjölskyldu þinni, vinum, börnum til fróðleiks.

  Húsfreyja telur sig heppna konu, því hún á í fórum sínum

  mörg "spor" sem henni hefur, oft undraverðan

  máta,  markað á sitt eigið líf, og er þegar byrjuð að skrá

  sumt niður.

  Því miður á hún einnig "óminnistímabil" þar sem hún

  kemur bara niður á gráa ÞOKU, þegar hún hugsar til baka.

  Og verst er að eiga 3-5 ár samfelld, þar sem aðeins

  eitt og eitt "spor" finnst á stangli.

  Húsfreyja upplifir þennan tíma í dag sem "dauðan"

  og  "flatan"Errm!

  TÝNDAN!

  Hefur jafnvel dottið í hug að, hún hafi orðið fyrir "sjálfs-andláti",

  en ekki kunnað við að vera bögga ástvini sína, vini og

  vinnuveitendur á "dauða" sínum, og ákveðið að halda áfram

  af gömlum vanaTounge!

  Jamm, það er snúið að "marka spor" í sitt eigið líf,

  oft þægilegt að fljóta hugsunarlaust með,

  þar til kemur að því að maður hefur öðlast þann

  þroska að geta litið til baka og vill gjarnan gera upp lifað líf.

  Þá er erfitt að finna fá eða engin eigin "spor",

  og muna eftir ENGUAngry!

  Slitrum og brotabrotum.

  Vita jafnvel ekki hvernig maður varð sá sem maður er í dag.

  Hvaða reynslu hefur maður safnað í sarpinn?

  Hvaða þekkingu hefur maður öðlast?

  Er maður að "marka jákvæð spor" á eigið líf?

  Eða neikvæða?

  Jamm!

  Húsfreyja á stórafmæli í sumar.

  Húsfreyja hefur greinilega náð þeim þroska að vilja

  líta til baka og gera upp margt í lífi sínu.

  Finna sátt.

  En hvort henni lánist það, er svo allt annað málWhistling!

  Húsfreyja og 9 ára djásn eru svo á flakki innanborgar í dag.

  Ætla að "marka gleðispor" saman í sálir sínar og líf.

  Húsdýragarður, blóm og kattarmatur verða að fylgja pakkanum.

  Góðar stundir og gangi ykkur vel að "marka sporin" ykkar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband