29.4.2010 | 18:29
Af verkum sínum....
..eru menn dæmdir.
Hér eru 3 "athafnamenn"
af frónversku ætterni dæmdir
"núll og nix" af tímaritinu Time
úti í henni Ameríku.
Og þaðan af verra.
Skyldu þessir þremenningar skilja
að græðgi og eiginhagsmunapot blinduðu þá
gjörsamlega, og fjölmargar gjörðir þeirra urðu að
ómerkilegum "skítverkum", sem sköðuðu heila þjóð?
Gert er grín að þeim erlendis,
á sumum stöðum eru þeir hataðir,
og hér á landi sýnist mörgum þeir bæði ærulausir
sneyddir allri virðingu.
Jamm.
En máske þeir smelli sér í "góðærisafvötnun"
allir þrír, og vindi ofan af sér sérhlífni, eigingirni og græðgi,
og verði aftur nýtir þegnar í þjóðfélaginu.
Aldrei að vita.
Maður getur alltaf leyft sér að vona!
Það væri vel ef svo færi, og ekki síst fyrir afkomendur þeirra,
sem nytu góðs af batnandi mannorðinu.
En merkilegt atarna, að sitja í svona daunillum dammi,
og ekki laust við að húsfreyja vorkenni þremenningum
þessum.
Glataður orðstýr, er eitt versta tjón í heimi.
Góðar stundir.
Áhrifalitlir útrásarvíkingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.